Hanna hæstánægð í Mexíkó að sjá soninn spila Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2026 11:31 Hanna Símonardóttir er einstök fótboltamamma og synir hennar hafa gert það gott í boltanum. Anton Ari er markvörður Breiðabliks og íslenska landsliðsins, og Magnús Már þjáfar Aftureldingu. Vísir/Ívar „Mamma sem ferðast um allan heiminn til að sjá son sinn,“ skrifar mexíkóski miðillinn Esto en Línea, um Hönnu Símonardóttir sem var mætt til að sjá son sinn mæta Mexíkó í vináttulandsleik í fótbolta í nótt.
Anton Ari Einarsson stóð í marki Íslands í leiknum og átti nokkrar góðar markvörslur þó heimamenn hafi reynst mun sterkari og unnið 4-0 sigur. Foreldrar hans ferðuðust í 15 klukkutíma, um 7.300 kílómetra, til þess að sjá leikinn og vonuðust að sjálfsögðu til þess að sjá Anton spila. Þó að fréttir af óeirðunum í Mexíkó, eftir að herinn skaut glæpaforingja til bana á sunnudaginn, hafi verið áberandi virðast þau Hanna og Einar Þór Magnússon hafa notið sín í Queretaro eins og Hanna útskýrði á reiprennandi spænsku, í klippunni hér að neðan. Una madre cruza el mundo por su hijo. 🌍❤️🥹Hanna Simonardottir viajó desde Islandia solo para verlo… aunque no sea titular en la portería. Porque para una madre, su hijo siempre juega de titular. 🧤🇮🇸📹 @Eduardo_EPigeon pic.twitter.com/5SuYGiWD3I— Esto en Línea (@estoenlinea) February 26, 2026 Hanna sagði að það væri gott að sjá hve mikil öryggisgæsla væri, þegar þau Einar voru á leið á leikinn í gær. Þau höfðu þá dvalið í fjóra daga í Queretaro og verið hæstánægð með dvölina þrátt fyrir fréttir af óeirðum annars staðar í Mexíkó. „Allt er svo frábært hérna. Maturinn, fólkið, náttúran. Ég er svo hrifin af öllu hérna,“ sagði Hanna í lauslegri þýðingu blaðamanns. Eftir að hafa verið á varamannabekk Íslands í leikjunum í undankeppni HM síðasta haust þá spilaði Anton eins og fyrr segir í nótt, sinn þriðja A-landsleik. Þessi 31 árs gamli markvörður Breiðabliks hefur lengi notið stuðnings foreldra sinna í fótboltanum og þá sérstaklega Hönnu, sem er „ekki eins og aðrar mömmur“ eins og Anton orðaði það í viðtali á sínum tíma. „Mamma er besta kona í heimi og er ekki eins og aðrar mömmur. Hún mætti á báða Evrópuleikina úti, mætti á leikinn á Akureyri og hvar sem við erum að spila á landinu. Hún er alltaf mætt að horfa á strákinn sinn,“ sagði Anton þegar hann var markvörður Vals árið 2017. Óeirðir í Mexíkó breyta greinilega engu þar um. Hanna sagði sjálf frá því á Facebook að þau Einar hefðu ekki orðið vör við neina óöld í Queretaro. „Mikið af löggum sjáanlegar reyndar en daglegt líf hér virðist á fullum swing. Við hættum við dagsferð út fyrir borgina til öryggis og erum bara frekar góð,“ skrifaði Hanna á Facebook í vikunni.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira