Græna gímaldið: Minnisvarði um glötuð tækifæri Davíð Bergmann skrifar 26. febrúar 2026 10:16 Við erum föst í hörmungarhyggju og sjáum ekki lengur sóknarfærin sem blasa við. Hrópandi dæmi um þetta er Græna gímaldið í Breiðholti – risavaxið ferlíki sem stendur þar sem framtíð unga fólksins okkar gæti blómstrað. Raunveruleg neyð í menntakerfinu Á meðan við störum á gímaldið hlaðast upp staðreyndir sem við kjósum að hunsa: Skólaforðun: 1.000 börn eru utan skóla samkvæmt nýjustu gögnum. Óvirkni: 3.000 ungmenni (16–24 ára) eru hvorki í námi né vinnu, bara á höfuðborgarsvæðinu. Frávísanir: 1.000 nemendum er vísað frá iðnnámi árlega vegna plássleysis, þrátt fyrir öskrandi skort á iðnmenntuðu fólki. Gæðaskortur: Er hugsanlegt að mygla í nýbyggingum sé bein afleiðing þess að við menntum ekki okkar eigið fólk heldur treystum á innflutt vinnuafl án réttrar þekkingar? Sónunin: Hvað hefði getað verið? Í stað þessarar byggingar sem er í óþökk íbúa fyrir utan það hvað hún er ferlega ljót hefði risið skólaúrræði þarna í sátt við íbúa á svæðinu sem hefði verið iðandi mannlíf. Svæðið er miðsvæðis, í alfaraleið með frábærum strætósamgöngum og íþróttamannvirkjum í næsta nágrenni. Í stað gímaldsins gæti risið: Fjölsmiðja og listaskóli: Miðstöð sköpunar fyrir unga fólkið. Iðnskólabrú: Millistig sem grípur þá sem komast ekki að annars staðar. Sjálfbært námssamfélag: Björt og opin bygging sem skyggir á engan, þar sem ræktun og verkleg færni ganga hönd í hönd. Þarna væri líka hægt að vera með listgreinar af öllu tagi, hvort sem það er leikmyndagerð eða leiklist. Möguleikarnir eru endalausir og það eina sem þarf að er að hugsa út fyrir græna gímaldið „KASSANN“. „Við þurfum að hætta „innsoginu“ yfir fréttum af vandamálum og fara að byggja upp lausnir. Græna gímaldið er tákn um það þegar við hugsum ekki út fyrir kassann.“ Myndin er unnin af gervigreind. Við eigum að byggja upp framtíðina þar sem tækifærin eru mest en ekki fórna dýrmætum lóðum undir mannvirki sem gefa samfélaginu ekkert til baka í formi mannauðs. Þetta mun þar að auki borga sig upp samfélagslega margfald. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar, áhugamaður um betra samfélag, og Miðflokksmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Við erum föst í hörmungarhyggju og sjáum ekki lengur sóknarfærin sem blasa við. Hrópandi dæmi um þetta er Græna gímaldið í Breiðholti – risavaxið ferlíki sem stendur þar sem framtíð unga fólksins okkar gæti blómstrað. Raunveruleg neyð í menntakerfinu Á meðan við störum á gímaldið hlaðast upp staðreyndir sem við kjósum að hunsa: Skólaforðun: 1.000 börn eru utan skóla samkvæmt nýjustu gögnum. Óvirkni: 3.000 ungmenni (16–24 ára) eru hvorki í námi né vinnu, bara á höfuðborgarsvæðinu. Frávísanir: 1.000 nemendum er vísað frá iðnnámi árlega vegna plássleysis, þrátt fyrir öskrandi skort á iðnmenntuðu fólki. Gæðaskortur: Er hugsanlegt að mygla í nýbyggingum sé bein afleiðing þess að við menntum ekki okkar eigið fólk heldur treystum á innflutt vinnuafl án réttrar þekkingar? Sónunin: Hvað hefði getað verið? Í stað þessarar byggingar sem er í óþökk íbúa fyrir utan það hvað hún er ferlega ljót hefði risið skólaúrræði þarna í sátt við íbúa á svæðinu sem hefði verið iðandi mannlíf. Svæðið er miðsvæðis, í alfaraleið með frábærum strætósamgöngum og íþróttamannvirkjum í næsta nágrenni. Í stað gímaldsins gæti risið: Fjölsmiðja og listaskóli: Miðstöð sköpunar fyrir unga fólkið. Iðnskólabrú: Millistig sem grípur þá sem komast ekki að annars staðar. Sjálfbært námssamfélag: Björt og opin bygging sem skyggir á engan, þar sem ræktun og verkleg færni ganga hönd í hönd. Þarna væri líka hægt að vera með listgreinar af öllu tagi, hvort sem það er leikmyndagerð eða leiklist. Möguleikarnir eru endalausir og það eina sem þarf að er að hugsa út fyrir græna gímaldið „KASSANN“. „Við þurfum að hætta „innsoginu“ yfir fréttum af vandamálum og fara að byggja upp lausnir. Græna gímaldið er tákn um það þegar við hugsum ekki út fyrir kassann.“ Myndin er unnin af gervigreind. Við eigum að byggja upp framtíðina þar sem tækifærin eru mest en ekki fórna dýrmætum lóðum undir mannvirki sem gefa samfélaginu ekkert til baka í formi mannauðs. Þetta mun þar að auki borga sig upp samfélagslega margfald. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar, áhugamaður um betra samfélag, og Miðflokksmaður
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun