Erlent

Hótun um á­rás á orkukerfi Norður­landanna

Kjartan Kjartansson skrifar
Rafmagnslínur í Sundsvall í Svíþjóð. Myndin er úr safni.
Rafmagnslínur í Sundsvall í Svíþjóð. Myndin er úr safni. Vísir/EPA

Yfirvöld á Norðurlöndunum er sögð kanna alvarlega hótun sem beinist að orkukerfi allra landanna. Ekki liggur fyrir í hverju hótunin felst en hún er talin stafa frá erlendu ríki.

Sænski fjölmiðillinn TV4 segir að hótunin hafi borist öllum Norðurlöndunum, þar á meðal Svíþjóð. Verið sé að rannsaka tengsl hótunarinnar við erlent ríki. Lögreglan segir fjölmiðlinum að lykilinnviðir séu vaktaðir vegna hótunarinnar.

Talskona sænsku almannavarnastofnunarinnar segir þarlenda ríkisútvarpinu að hún viti af hótuninni og vinni með öðrum stofnunum vegna hennar. Sænska orkustofnunin segist hafa upplýsingar um hótunina en að hún geti ekki tjáð sig um mögulega ógn.

Talsmaður stofnunar sænska varnarmálaráðuneytisins segir enga beina ógn gegn sænskum orkuinnviðum sem stendur.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×