Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2026 21:54 F-35B Lightning II herþotum flogið yfir Karíbahafi í janúar. Þoturnar eru hannaðar til að sjást illa og lítið á ratsjám og byggja á mjög viðkvæmri tækni. Flugher Bandaríkjanna/Katelynn Jackson Bandarískur maður sem starfaði lengi hjá flugher Bandaríkjanna sem herþotuflugmaður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að aðstoða kínverska herinn. Hann flaug bandarískum herþotum í rúma tvo áratugi og þar á meðal F-35 þotum og þjálfaði bandaríska flugmenn í flugi þeirra þota. Þá hefur hann einnig reynslu af bandarískum kjarnorkuvopnum.
Maðurinn heitir Gerald Eddir Brown Jr. og er 65 ára gamall fyrrverandi majór. Hann er meðal annars sakaður um að hafa komið að því að þjálfa kínverska herflugmenn en til þess þarf leyfi frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, sem Brown mun ekki hafa fengið. F-35 þoturnar eru hannaðar til að sjást lítið og illa á ratsjám en sú tækni er mjög leynileg í Bandaríkjunum. Auk þess að hafa flogið F-35 flaug Brown einnig F-4 Phantom, F-15 og F-16 þotum fyrir flugher Bandaríkjanna. Í yfirlýsingu frá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna frá því í gærkvöldi var Brown sagður undir grun um að hafa svikið Bandaríkin með því að þjálfa kínverska hermenn í að berjast gegn þeim sem hann hafi svarið að verja. Einn af stjórnendum Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) segir þetta enn eitt dæmið um að Kínverjar nýti sér þekkingu og getu núverandi og fyrrverandi bandarískra hermanna við nútímavæðingu herafla Kína, sem hefur verið gífurlega umfangsmikil á undanförnum árum. Bandaríkjamenn hafa kvartað sáran yfir því í gegnum árin að þessi nútímavæðing herafla Kína byggi að miklu leyti á tækni sem stolið var frá Bandaríkjunum. Fyrir nokkrum árum var fyrrverandi flugmaður fyrir landgöngulið Bandaríkjanna handtekinn í Ástralíu en hann var sakaður um að hjálpa Kínverjum að þjálfa flugmenn í að fljúga af flugmóðurskipum. Sú handtaka var gerð í kjölfar þess að yfirvöld í Bretlandi vöruðu við því að fyrrverandi flugmenn breska flughersins væru að vinna fyrir kínverska herinn og hjálpa til við þjálfun kínverskra flugmanna og við mótun áætlana fyrir átök gegn vestrænum flugmönnum. Dómsmálaráðuneytið segir að Brown, sem hætti hjá hernum árið 1996 eftir að hafa starfað þar í 24 ár, hafi starfað fyrir Kínverja frá ágúst 2023 eða mögulega lengur. Hann hafi gert samning við kínverskan mann sem heitir Stephen Su Bin. Sá maður játaði fyrir dómi árið 2016 að hafa lagt á ráðin um að stela leynilegum og viðkvæmum gögnum varðandi hernaðartækni af bandarískum fyrirtækjum og fyrir kínverska herinn. Fyrir það var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Brown er sagður hafa varið að minnsta kosti tveimur árum í að þjálfa kínverska flugmenn.
Bandaríkin Kína Hernaður Erlend sakamál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira