Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Valur Páll Eiríksson skrifar 27. febrúar 2026 14:02 Kristinn Pálsson mætir í toppstandi til leiks. Vísir/Lýður Valberg Erfitt var fyrir Kristinn Pálsson að horfa á tap Íslands fyrir Bretlandi í síðasta landsliðsglugga og hann er ákveðinn í að liðið verji heimavöllinn gegn Litáum í kvöld. Hann mætir til leiks í toppformi þrátt fyrir pastaát á Ítalíu. „
Það er bara æðislegt. Okkur fjölskyldunni líður rosalega vel. Þetta er aðeins öðruvísi, rólegra og minna stress utan körfuboltans. Mér líður mjög vel þarna, og okkur,“ segir Kristinn um lífið á Ítalíu en hann flutti þangað út í sumar eftir að hafa leikið með Val hér heima undanfarin ár. Klippa: Kristinn í toppstandi þrátt fyrir pastað Kristinn virkar í toppstandi. Aðspurður um það hvort hann hafi tónað sig vel í atvinnumennskunni ytra segir hann: „Jú, maður er meira að æfa, það eru fleiri æfingar og meiri lyftingarnar en maður er vanur. Maður er kannski búinn að tónast aðeins,“ segir Kristinn léttur. Menn liggja þá ekkert í pastanu þarna úti? „Jú, jú, maður gerir það líka. Það kannski hefur engin áhrif þegar maður æfir svona mikið.“ Verkefni kvöldsins er sterkt lið Litáen. Litáar unnu Breta með eins stigs mun og töpuðu svo með eins stigs mun fyrir Ítölum í síðasta glugga. Öll lið í riðlinum hafa unnið einn og tapað einum hingað til og má búast við hörkuleik. „Við vitum að Litáen er þvílík körfuboltaþjóð. Þeir eru geggjaðir og með hávaxna leikmenn í öllum stöðum. Þeir eru skipulagðir og vita hvernig þeir sækja körfur og spila vörn. En við vitum það líka. Þetta verður geggjaður leikur,“ segir Kristinn. Hann missti af síðasta glugga liðsins en líkt og þeir leikmenn sem spiluðu heimaleikinn við Breta í nóvember var skýrt að okkar menn voru ekki upp á sitt besta. Til stendur að svara fyrir tapið fyrir Bretum og ná heimasigri. „Maður horfði á síðasta heimaleik í sjónvarpinu og skynjaði stemningsleysi og það hafi verið þungt yfir öllu. Það er ákall á stuðningsfólk að láta heyra í sér og búa til þessa stemningu sem við höfum verið þekktir fyrir í þessari höll,“ segir Kristinn. Viðtalið má sjá í spilaranum þar sem gengur á ýmsu á bakvið Kristinn á meðan á því stendur.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Sjá meira