Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. febrúar 2026 13:50 Daði Már segir að aðgerðirnar verði kynntar á allra næstu dögum. Vísir/Anton Brink Ríkisstjórnin ræddi aðgerðir gegn verðbólgunni á reglulegum ríkisstjórnarfundi sínum í morgun og ætlar að blása til aðgerðar. Fundað verður með aðilum vinnumarkaðarins eftir helgi.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við fyrir fjórtán mánuðum, í desember 2024, en síðan hafa vextir lækkað hægar en vonast var til og tólf mánaða verðbólga hefur heilt yfir aukist. Hún stendur í stað á milli mánaða samkvæmt nýjustu mælingu og mælist rúmlega fimm prósent. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra lýsti áhyggjum sínum í fréttum Sýnar í gærkvöldi. „Þetta eru mikil vonbrigði og við sáum svo sem vísbendingar um þetta í síðustu mælingu, en við sjáum það glögglega í þessari mælingu sem er þá alveg laus við öll áhrif breytinga á opinberum gjöldum, að það er ennþá töluverður undirliggjandi verðbólguþrýstingur,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra. Við það ástand væri ekki hægt að una lengi. Var málið rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Daði segir að grípa verði til aðgerða. „Við erum að skoða það og þurfum að vinna í samráði við aðila vinnumarkaðrins. Það mun líta ljós á allra allra næstu dögum. Við þessu verður að bregðast,“ segir Daði. Von sé á aðgerðum og þá í nokkrum liðum. „Já, ég geri ráð fyrir því. Þetta er flókið verkefni. Ríkisfjármálin eru ekki hentug í skyndiákvarðanir. Við þurfum að skoða hvað við getum gert.“ Ekki sé tímabært að ræða í hverju aðgerðirnar felist en fundað verði með aðilum vinnumarkaðarins strax eftir helgi.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira