Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. febrúar 2026 22:01 Óttar mætti að sjálfsögðu með einn bauk þegar hann hitti fréttamann og tökumann í miðbænum. Vísir/Bjarni Einn þekktasti sykraði gosdrykkur í heimi er kominn aftur í búðir í upprunalegri mynd. Einn mesti aðdáandi drykkjarins sem ekki hefur verslað við Ölgerðina í tæp tvö ár vegna málsins hefur tekið gleði sína á ný.
Það var sumarið 2024 sem íslenskir neytendur tóku eftir breytingum á bragðinu og hafði fréttastofa eftir Ölgerðinni að PepsiCo hefði ákveðið að breyta uppskriftinni og að gervisætindi á borð við asesúlfam og súkralósi væru nú meðal innihaldsefna. Breytingin féll í grýttan jarðveg meðal neytenda og var líklega enginn ósáttari en pepsíunnandinn Óttar sem lýsti óánægju sinni í kvöldfréttum á sínum tíma. Hann segir nú að hann hafi látið kné fylgja kviði á sínum tíma. Ekki álhattur „Ég setti Ölgerðina í bann, hætti að drekka Pepsí, hætti að kaupa bjór af þeim og hef bara ekki keypt neitt af þeim síðan. En nú hefur skipast veður í lofti,“ segir Óttar. Því gamla Pepsíið er mætt aftur og segir Ölgerðin í svörum til fréttastofu að það sé til að svara kalli ákveðins hóps neytenda á tímum þar sem sala á sykruðum gosdrykkjum sé þó á undanhaldi. „Þetta kennir okkur að það er ekki sjálfgefið að kvartanir séu tilgangslausar. Ölgerðin sá að sér, er búin að laga þetta og ég get fyrir mitt eigið leyti sagt að ég er ekki álhattur eins og þið sjáið og ég get meira að segja ekki bara skipt um skoðun, heldur líka höfuðfat,“ segir Óttar sem setti upp annað höfuðfat í kvöldfréttum. Óttar smakkaði líka drykkinn og gaf viðbrögð. Sjón er sögu ríkari.
Gosdrykkir Neytendur Mest lesið Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Fleiri fréttir Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira