England hitaði upp fyrir leik gegn Íslandi með stórsigri Aron Guðmundsson skrifar 3. mars 2026 18:52 Georgia Stanway var öflug fyrir Evrópumeistarana í kvöld. Vísir/Getty Ríkjandi Evrópumeistarar Englands hófu vegferð sína að HM í Brasilíu með sigri gegn Úkraínu í fyrsta leik liðanna í undankeppni HM. Lokatölur 6-1 Englandi í vil, liðið mætir næst Íslandi.
Það reyndist þolinmæðisverk fyrir Evrópumeistarana að brjóta múrinn gegn Úkraínu í kvöld en liðin mættust í Tyrklandi sökum ástandsins í Úkraínu. Þrátt fyrir mikla yfirburði Englendinga kom fyrsta mark liðsins ekki fyrr en í upphafi seinni hálfleiks. Það skoraði Alessia Russo sem er leikmaður Arsenal á Englandi. Russo var aftur á ferðinni nokkrum mínútum síðar er hún tvöfaldaði forystu Englands. 2-0. Það leið hins vegar ekki að löngu þar til að Úkraínu tókst að minnka muninn. Það gerði Yana Kalinia á 58.mínútu. 2-1. Það gerðist mikið á þessum kafla leiksins og aðeins nokkrum mínútum eftir mark Úkraínu fékk England vítaspyrnu þegar brotið var á Lauren Hemp innan vítateigs. Georgia Stanway, liðsfélagi Glódísar Perlu Viggósdóttur hjá Bayern Munchen, tók vítaspyrnuna fyrir Englendinga og bætti við þriðja marki liðsins. Staðan orðin vænleg fyrir Evrópumeistarana, 3-1. Stanway var svo aftur á ferðinni á 70.mínútu þegar hún bætti við fjórða marki Englands með skoti sem söng í marknetinu upp í vinstra horninu. 4-1. Jessica Park bætti við fimmta marki Englands á 78.mínútu eftir stoðsendingu frá Stanway og undir lok venjulegs leiktíma bætti hún við sjötta marki liðsins. Staðan orðin 6-1 Englandi í vil. Reyndist það lokamark leiksins. Evrópumeistarar Englands hefja undankeppni HM á sigri. Liðið tekur á móti Íslandi á City Ground, heimavelli enska úrvalsdeildarfélagsins Nottingham Forest á laugardaginn kemur.
HM 2027 í Brasilíu Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira