Innlent

Vantaði fimm­tán tennur eftir að þau sviku út raf­ræn skil­ríki og neyddu hann í flug

Eiður Þór Árnason skrifar
Vettvangur meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í Reykholti.
Vettvangur meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í Reykholti. Vísir

Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.

RÚV greinir frá þessu og vísar í ákæru sem þingfest verður í Héraðsdómi Suðurlands síðar í mánuðinum. Sakborningarnir sex eru Íslendingar, þar af ein kona, og eru þau tengd fjölskylduböndum. Fórnarlambið er með maltneskt ríkisfang en er sagt ættað frá Palestínu. Elsti sakborningurinn er á sjötugsaldri en sá yngsti um þrítugt. Þrjú þeirra eru sögð hafa ráðist inn á heimili mannsins.

Málið vakti mikla athygli árið 2024 en það kom á borð lögreglu eftir tilkynningu um að ekki hefði náðst í maltneskan karlmann búsettum í Biskupstungum í nokkra daga. Tveimur dögum síðar bárust lögreglu upplýsingar um að maðurinn hefði fundist á Möltu, illa haldinn og með áverka víðs vegar um líkamann.

Fjögur voru handtekin. Hin handteknu voru karlmaður á áttræðisaldri, dóttir hans og tengdasonur um þrítugt auk bróður tengdasonarins.

Áður hafði verið greint frá því að konan væri grunuð um að hafa skipulagt ofbeldið. Nú kemur fram í ákæru að fórnarlambinu hafi meðal annars verið hótað að siglt yrði með hann til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis, að sögn RÚV.

Fengið starfsmann til að setja upp rafræn skilríki

Einnig er sakborningum gert að hafa blekkt starfsmann í verslun Símans til að setja upp rafræn skilríki í síma mannsins. Þá hafi þau keypt flugmiða til Parísar og þaðan áfram til Möltu í nafni mannsins og síðan millifært 17,6 milljónir af reikningi hans.

Eftir það hafi honum verið fylgt á Keflavíkurflugvöll og hótað að dóttur hans yrði gert mein ef hann færi ekki um borð, að því er fram kemur í frétt RÚV. Á Möltu hafi svo komið í ljós að hann var meðal annars með fjögur brotin rifbein, blæðingu í framheila, nef- og puttabrotinn og vantaði fimmtán tennur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×