Hraðlygni leiðsögumaðurinn ekki einsdæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“ Agnar Már Másson skrifar 4. mars 2026 18:05 Fertugur breskur karlmaður af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands næstu tvö árin eftir að hafa starfað hér á landi sem leiðsögumaður án leyfis. Vísir/Vilhelm „Það má gera ráð fyrir því að það séu fleiri og fleiri tugir — ef ekki hundruð — svona aðilar sem eru starfandi á Íslandi,“ segir Þór Bínó, varaformaður deildar leiðsögufólks hjá VR, um mál bresks karlmanns sem vísað var úr landi eftir að hafa starfað sem leiðsögumaður án atvinnu- og dvalarleyfis og svo logið ítrekað að lögreglu um ferðir sínar á Íslandi.
Þór var til tals um málið í Reykjavík síðdegis í dag í kjölfar þess að greint hafði verið frá því á Vísi í morgun að fertugum breskum karlmanni af kínverskum uppruna hefði verið vísað úr landi og hann settur í endurkomubann þar sem hann hafði starfað sem leiðsögumaður á Íslandi án leyfis í tvö ár. Þegar Lögreglan á Selfossi stöðvaði för mannsins við almennt umferðareftirlit í september ók hann með fimm kínverska ferðamenn á hópbifreið í skipulagðri ferð. Maðurinn mun hafa gefið í skyn að farþegarnir væru starfsmenn bresks fyrirtækis, en farþegarnir höfðu aðra sögu að segja: þeir væru í ferð um landið undir leiðsögn mannsins, sem hafi auglýst Íslandsferðir á kínverskum samfélagsmiðli. „Töluvert mikið“ „Þetta er áhyggjuefni og við höfum verið að ræða þetta og tala um þetta í töluverðan tíma,“ segir Þór og tekur fram að leiðsögumenn og bílstjórar á helstu ferðamannasvæðum létu gjarnan yfirvöld vita þegar þeir sæju ítrekað sömu aðilana á ómerktum bílum. Hlusta má á viðtalið í spilaranum. „Þetta er töluvert mikið,“ heldur Þór hjá VR áfram og bendir á nýlega skýrslu ASÍ frá því í febrúar, þar sem greint er frá eftirlitsátaki sem ráðist var í um sumarið 2025. Þá var rætt við forsvarsmenn 325 ferðaþjónustufyrirtækja, sem ýmist voru ökumenn, leiðsögumenn eða ökuleiðsögumenn, og reyndust 42 af þeim fyrirtækjum ekki vera skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins. „Þannig að þau eru ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur, og eru þar af leiðandi ekki með leyfi og réttindi. Þetta hefur ekki bara áhrif á gæði ferðaþjónustunnar og öryggi og annað sem við horfum á, heldur líka starfsöryggi þeirra sem eru í greininni,“ segir Þór, sem bætir við að þetta skekki samkeppni á markaði. Leiðsögumenn veri vel merktir En hvernig á að sporna við því að menn bjóði hér í ferðir í leyfisleysi? Þór nefnir að dæmi séu um það í öðrum Evrópulöndum að leiðsögumenn þurfi að vera með starfsleyfi á tilteknum svæðum, eða jafnvel í tilteknum borgum. Hann hefur eftir lögregluyfirvöldum að þægilegra væri að sinna eftirliti ef allir leiðsögumenn hefði hefðu sýnilegt, opinbert skírteini eða einhvers konar merkingu. „Við erum á Íslandi, við erum ekki bara innanhúss,“ segir hann og vísar þar til veðurfars landsins. „Ég myndi fyrst og fremst hugsa um öryggi, bæði leiðsögumanna og þeirra sem eru á svæðinu,“ bætir hann við. „Það er fullt af erlendum aðilum sem hafa aldrei ekið í snjó — og þá er ég ekki að tala um þess erlendu ríkisborgara sem hafa búið hér í mörg ár, þetta hefur ekkert með þá að gera — en ef þú ætlar að starfa sem leiðsögumaður á flestum stöðum í Evrópu, þá þarftu að vera með réttindi.“ Nær ekkert að stoppa menn frá því að selja leiðsögn Er Ísland ekki að gefa út nein réttindi svo að hægt sé að sjá að leiðsögumaður sé með réttindi? „Því miður ekki, en það er hins vegar Evrópustaðall til að kenna leiðsögunám. Og það var nú tekið út á síðasta námi og VR var að veita viðurkenningar fjórum skólum sem eru að kenna leiðsögunám samkvæmt þessum staðli,“ svarar hann. „Hins vegar er ekkert sem segir að þú þurfir að klára nám til þess að vera leiðsögumaður.“ Þór segir að eftirlitsaðilar séu almennt jákvæðir í garð slíkra hugmynda en löggjafinn virðist aftur á móti eiga í erfiðleikum við „að komast inn í nútímann, á mörgum sviðum.“ Hver er þá með botlann núna? „Það er enginn með boltann núna, þetta er einstakt tilfelli. Þarna var hægt að góma þennan en það má gera ráð fyrir því að það séu fleiri og fleiri tugir ef ekki hundruð svona aðilar sem eru starfandi á Íslandi. Og þetta er ekki bara yfir sumartímann; þetta er líka um vetrartímann og allt árið.“
Ferðaþjónusta Reykjavík síðdegis Lögreglumál Kína Bretland Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Sjá meira