Inga Sæland Gunnar Ármannsson skrifar 5. mars 2026 11:15 Inga Sæland talar inn í hóp öryrkja, sem illu heilli er hópur sem fer ört vaxandi. En þeir kjósa hana þess vegna. Þannig nær hún inná þing. Talar inn í hóp sem hefur verið afskiptur í íslensku samfélagi og ekki nógu vel hugsað um. Þeir kjósa hana, eðlilega, og hún kemst á þing. Og hún kemst að sem ráðherra. Og lofar öllu fögru - og framkvæmir þeim til hagsbóta. En það má spyrja, er of langt gengið? Það þarf að gæta að jafnvægi þeirra sem geta unnið og þeirra sem það geta ekki. Það þarf að gæta að jafnvægi þeirra sem skapa verðmæti inn í kerfið og þeirra sem þarf að aðstoða. Það stefnir í að færri og færri skapi verðmætin en fleiri og fleiri þiggi af hinum. Það má einnig spyrja um hvernig þetta verður þegar barnabörn okkar reka samfélagið? Höfum við áhyggjur af því? Eða er okkur kannski alveg sama? Þetta verður hvort sem er þeirra vandamál en ekki okkar? Þeir stjórnmálamenn sem tala inn í þennan veruleika margra, eða annarra sérhagsmunahópa, fá atkvæði. Og oft um tíma með góðum árangri þannig að þeir komast á þing. Og þaðan sníða þeir stakkinn að sérhagsmunum kjósenda sinna fái þeir tækifæri til. Það er misjafnt hversu langan tíma það tekur fyrir þorra almennings að sjá skaðsemi þessarar sérhagsmunagæslu og/eða þröngrar hugmyndafræðilegrar nálgunar án stuðnings raka eða gagna. Nýverið höfum við séð dæmi þess hvað gerist þegar almennir kjósendur sjá skaðsemi vinsældastjórnunar sem þessarar þegar frekara framlag viðkomandi er afþakkað í kosningum. Heilu flokkarnir hverfa af þingi, jafnvel eftir langa setu. Nú horfum við uppá það að með nálgun sinni, hefur Inga Sæland, með sínum prívat flokki, komist í þá stöðu að hún ræður miklu í íslenskri pólitík í dag. Það er hún sem heldur hinum í skrúfstykki. Ef þær leyfa henni ekki að koma sínu fram þá mun Inga Sæland stoppa af þennan Evrópudraum þeirra stallsystra. Það eru því forvitnilegar vikur, og kannski mánuðir, framundan. Hverjum til hagsbóta? Það er Inga Sæland sem nú stýrir þeim hinum tveimur í raun - en ekki öfugt. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar