Vegið að Kvenréttindafélagi Íslands og kvenréttindabarátta kölluð árás á fjölskylduna Svandís Svavarsdóttir skrifar 5. mars 2026 16:31 Nú um stundir sjáum við víða um heim bakslag gegn jafnrétti og þeim hugmyndum sem liggja að baki því að konur hafi fullt frelsi, sjálfstæði og jafnan rétt í samfélaginu. Og því miður má einnig greina merki þess bakslags hér á landi í umræðunni þar sem meira að segja starf rótgróinna samtaka eins og Kvenréttindafélags Íslands er dregið í efa. Það er því ástæða til að staldra við og rifja upp hvaða hlutverki félagið hefur í raun gegnt í íslensku samfélagi. Kvenréttindafélag Íslands var stofnað árið 1907 og hefur í meira en heila öld verið einn helsti vettvangur kvenréttindabaráttu í landinu. Félagið hefur átt þátt í að knýja fram réttindi sem okkur þykja nú sjálfsögð: kosningarétt kvenna, aukna möguleika til menntunar og þátttöku í atvinnulífi, framfarir í jafnréttislöggjöf og skýrari vernd gegn mismunun. Barátta sem mætir alltaf andstöðu Saga kvenréttinda dregur fram með skýrum hætti að nánast hvert skref í átt til aukins jafnréttis hefur á sínum tíma mætt andstöðu. Hugmyndir sem síðar urðu hluti af sjálfsögðum réttindum voru gjarnan sagðar róttækar, óþarfar eða jafnvel ógn við samfélagið. Kvenréttindabarátta á Íslandi hefur verið borin áfram af fjölbreyttum hópi kvenna og bandamanna – í félagasamtökum, á vettvangi stjórnmálanna, í verkalýðshreyfingu, fræðasamfélagi og í margvíslegum grasrótarhreyfingum á mismunandi tímum. Kvenréttindafélag Íslands hefur þó alla tíð verið einn af mikilvægustu þráðum í þeirri löngu sögu. Ísland í fararbroddi Ísland hefur um árabil verið í fararbroddi í kynjajafnréttismálum á alþjóðavettvangi og rödd okkar hefur skipt máli í þeirri umræðu. En sá árangur varð ekki til af sjálfu sér. Hann byggir á áratugalangri baráttu kvenna fyrir réttindum sem í dag móta líf fólks og fjölskyldna: réttinum til þungunarrofs, uppbyggingu leikskólakerfisins, fæðingarorlofi og auknu efnahagslegu sjálfstæði kvenna. Þessi réttindi hafa ekki aðeins breytt lífi kvenna – þau hafa gert íslenskt samfélag opnara, réttlátara og betra fyrir fjölskyldur. Sú þróun varð ekki til án átaka. Andstaðan hefur alltaf verið til staðar. En baráttunni er ekki lokið og enn þarf að huga að frekari réttarbótum og ekki síður fjármögnun og framkvæmd mikilvægra réttindamála. Þessi orðræða birtist ekki aðeins erlendis. Við sjáum hana nú einnig í íslenskri pólitík þar sem reynt er að gera lítið úr starfi kvenréttindasamtaka og stilla jafnréttisbaráttu upp sem árás á fjölskylduna. Baráttan heldur áfram Réttindi sem virðast sjálfsögð í dag voru einu sinni kölluð öfgar. Við þurfum að standa vörð um þau réttindi sem hafa náðst og halda vöku okkar í umræðunni þegar reynt er að gera lítið úr kvenfrelsisbaráttunni. Jafnrétti verður ekki til af sjálfu sér. Það hefur alltaf útheimt baráttu og mun gera það áfram. Höfundur er formaður VG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svandís Svavarsdóttir Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Sjá meira