Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 13:45 Bukayo Saka fagnar sigurmarki sínu fyrir Arsenal en þetta var eitt af fáum skiptum í leiknum þar sem Arsenal-menn bjuggu eitthvað til á sóknarhelmingnum. Getty/Mike Hewitt Arsenal er ekki bara á toppnum í ensku úrvalsdeildinni heldur tryggði félagið sér einnig toppsætið á listanum yfir það lið sem hefur tekið sér mestan tíma í öll föst leikatriði í einum leik á tímabilinu.
Í 1-0 sigrinum á Brighton skoraði Bukayo Saka eina markið strax á níundu mínútu og Arsenal gerði ekki mikið eftir það. Liðið tók sér aftur á móti mikinn tíma í allar hornspyrnur, allar aukaspyrnur, allar markaspyrnur og öll innköst. Alls létu Arsenal-menn bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu við slíkar kringumstæður, eða þriðjung af öllum leiknum. Arsenal reyndi sjö skot allan leikinn og aðeins tvö þeirra fóru á markið. Liðið var með xG upp á 0,47 og fékk ekkert dauðafæri í öllum leiknum. Arsenal var líka með hærra xG eftir föst leikatriði (0,25) en í opnum leik (0,22) og það þrátt fyrir að markið hafi komið úr opnum leik. Brighton var yfir í allri tölfræði eins og hvað varðar fleiri skot (11-7), fleiri skot á mark (3-2), fleiri sendingar (470-322), fleiri snertingar í vítateig mótherjanna (29-18) og fleiri horn (4-3). Arsenal hreinsaði hins vegar boltann mun oftar frá marki sínu eða 50 sinnum á móti 28. View this post on Instagram A post shared by Goal (@goal)
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira