Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Valur Páll Eiríksson skrifar 7. mars 2026 09:01 Infantino og hans fólk í FIFA tilkynnti um auglýsingahlé í hvorum hálfleik á HM í sumar. Vísir/EPA Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, tók í fyrradag sögulega ákvörðun í aðdraganda komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. Hætt er við að breytingin hafi afgerandi áhrif á sífellt peningavæddari fótbolta, á kostnað leiksins sjálfs.
Það er afskaplega margt sem má rita um komandi heimsmeistaramót. Skrifa má um furðulegt samband Bandaríkjaforseta og forseta FIFA og þær sérkennilegu birtingarmyndir sem það tekur, spillingu í knattspyrnusambandinu og að þjóð neyðist að líkindum til að hætta keppni sökum þess að gestgjafinn hóf hernað gegn henni. Ef við höldum okkur hins vegar við það sem gerist innan vallar og íþróttina sjálfa, tók FIFA ákvörðun í gær sem gæti breytt fótboltanum til frambúðar, þyki hún heppnast vel á meðal gráðugra toppa í boltanum, með fulltrúa rétthafa sjónvarpsútsendinga sér við hlið. Líkt og fjallað var um á Vísi í fyrrakvöld munu verða þriggja mínútna vatnspásur í hvorum hálfleik í öllum leikjum heimsmeistaramótsins. Burtséð frá aðstæðum, veðri, landi eða tímasetningu leiks. Með þessu segist FIFA vera að bregðast við hættu á ofsahita, sem hafði sitt að segja á heimsmeistaramóti félagsliða sem fram fór í Bandaríkjunum síðasta sumar. Þar þurfti iðulega að stöðva leiki, leikmenn glímdu við háan hita í fjölmörgum leikjum og athygli vakti þegar Borussia Dortmund brá á það ráð að láta varamenn liðsins sitja inni í klefa meðan á leik stóð, til að verjast hitanum. Á yfirborðinu gæti það því verið sniðugt að gera þessar pásur. Að menn geti hvílt sig um stund og fengið sér vatn. Út frá rétthöfum geti þeir þá einnig gert ráð fyrir að leikirnir taki tiltekinn tíma – það sé ekki breytilegt. Pásurnar verði á öllum leikjum og gera megi ráð fyrir lengd leiksins í uppsetningu á dagskrá. Samhliða þessu opinberaði FIFA hins vegar að rétthafarnir – sjónvarpsstöðvarnar sem sýna frá mótinu í sumar – hafi heimild til að varpa út auglýsingum á meðan pásunum stendur. Auka sex mínútur af auglýsingum á öllum 104 leikjum heimsmeistaramótsins. Það munar um minna. Þar liggur hundurinn augljóslega grafinn. Stoppin eru ekki hugsuð fyrir leikmenn heldur fyrir gróðavélar fótboltans. Enda hefur lengi tíðkast og ákvæði verið í reglugerð árum saman um að taka megi vatnspásur vegna heilsu leikmanna í miklum hita. Sé hiti yfir ákveðnu marki og kalli aðstæður á það mun dómari bjóða upp á stutta pásu í hvorum hálfleik fyrir sig. Bandaríska leiðin FIFA hallar sér hins vegar nú í átt að bandaríska módelinu. NFL og NBA hafa árum saman troðið auglýsingum inn í stopp á leikjum til að hámarka tekjur. Það er að mörgu leyti skiljanlegt, enda ekki ódýrt að sýna heimsmeistaramót. Aftur á móti er fótbolti vinsælasta íþrótt heims vegna þess að hann flæðir. Hann samanstendur af tveimur löngum hálfleikjum þar sem íþróttin nýtur sín án truflana. Það er stór ástæða þess að íþróttin er sú stærsta í flestum samfélögum heims. Í sumar verður bandaríska leiðin farin og fótboltaleikir á stærsta sviðinu verða fjórir leikhlutar í stað tveggja hálfleikja. Hætt er við því að fyrirfram skipulögð auglýsingahlé í miðjum hálfleik breyti flæði leiksins en breyti einnig upplifun áhorfanda sem njóta leiksins í sófanum. Ef til vill er þetta það sem koma skal og framtíð fótboltans undir stjórn sambands sem sækist sífellt eftir meiri tekjum á kostnað flests annars. Það þarf hins vegar að staldra við þegar ráðist er með svo harkalegum hætti að grundvelli leiksins fagra.
FIFA HM 2026 í fótbolta Bandaríkin Utan vallar Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira