Við slettum öll einhvern tíma Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 10. mars 2026 08:01 Ég fullyrði að flest viljum við standa vörð um íslenska tungu og þá sérstaklega í því alþjóðlega umhverfi sem við búum við í dag. Ríkisstjórnin hefur áætlanir um að bregðast við þessari stöðu. Þegar kemur að ræktun tungumálsins þurfum við að byrja á okkur sjálfum. Sumir nota ensku talsvert mikið í bland við íslenskuna í daglegu tali. Við notum ensk orð um ýmislegt í daglega lífinu jafnvel þótt góð og gild orð séu til á okkar eigin máli um það sem við vildum sagt hafa. Ekki þarf annað en að opna fyrir útvarpið til að heyra hvernig málfar bæði þáttastjórnenda og viðmælenda er smitað af enskuslettum. Það er þó mismunandi hvað fólk slettir mikið. Samskipti við fólk af erlendum uppruna Við viljum gjarnan að þau sem hingað koma og ætla að setjast að til frambúðar tileinki sér íslenskuna. Hér eins og annars staðar er tungumálið líka forsenda þess að geta notið sín til fulls í samfélaginu. Við getum hjálpað þessu fólki með því að tala ávallt íslensku við það. Íslendingar eru margir hverjir hins vegar allt of fljótir að grípa til enskunnar. Það er eðlilegt að settar verði kröfur um að útlendingar sem ætla að setjast hér að og fara á vinnumarkaðinn læri íslensku og standist stöðluð próf í tungumálinu. Fyrirtæki sem kalla eftir erlendu vinnuafli eiga að sjá til þess að starfsmennirnir geti lært íslensku á vinnutíma og atvinnuleyfi og endurnýjun þeirra eiga að vera háð því að fólk standist tiltekna áfanga í íslensku. Aðrar þjóðir í Evrópu setja slík skilyrði. Íslenskukunnátta er lykillinn fjölbreyttum störfum og aðlögun að samfélaginu. Fólk sem hyggst setjast hér að hefur án efa það markmið að komast sem hraðast inn í samfélagið og verða fullgildir þegnar landsins. Þótt fólk eigi erfitt með að tjá sig á íslensku getur það í mörgum tilfellum skilið töluvert í tungumálinu en er eðlilega feimið að tala málið til að byrja með alla vega. Besta leiðin til að tileinka sér nýtt tungumál er hins vegar að nota það. Þannig skapar æfingin meistarann. Stuðningur við börn sem flytja til Íslands Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra hefur boðað aukna og bætta íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna í grunn- og framhaldsskólum. Enda er það ein af megin skyldum skólakerfisins að tryggja íslenskukennslu allra barna í leik- og grunnskólum. Um 32 prósent leikskólabarna í Reykjavík teljast nú vera fjöltyngd og rúm 20 prósent grunnskólabarna. Íslenskar rannsóknir sýna að börn af erlendum uppruna sem ekki ná fljótlega góðum tökum á íslenskunni eru líklegri til að verða jaðarsett og möguleikar þeirra til framhaldsnáms eru minni. Hlutfall brottfalls úr framhaldsskóla er hæst í þessum hópi. Fyrsta stig íslenskukennslunnar eru íslenskuverin en þau eru fyrir börn í 5.-10. bekk. Elstu nemendurnir ganga fyrir. Í Reykjavík er verið að endurskoða vinnu íslenskuveranna og á endurskoðun að vera lokið næsta haust. Árið 2023 voru öll fjögur Verin sprungin hvað ásókn varðar.Allt of mörg börn bíða eftir því að komast í þetta fyrsta úrræði. Skólabókasöfnin eru gulls í gildi fyrir börn á öllum aldri og þar er unnið ómetanlegt starf í að hvetja börnin með ráðum og dáð til að lesa sér til gagns og gamans. Hljóðbækur eru einnig mikilvægar fyrir börn af erlendum uppruna. Hlustun bætir orðskilning. Hér er um að ræða krefjandi verkefni sem krefst þrautseigju og þolinmæði. Hvert og eitt okkar á umfram allt að reyna ávallt að nota íslenskuna. Draga úr slettum og forðast í lengstu lög að grípa til enskunnar jafnvel þótt viðmælandi okkar sé ekki komin langt á veg með að tileinka sér íslenskuna. Íslendingar vilja eðlilega tala íslensku við öll tilefni. Þeir vilja tala íslensku við þjóninn, við afgreiðslufólkið, við heilbrigðisstarfsfólkið og aðra sem ýmist veita eða þiggja þjónustu á Íslandi. Til að ná þessu markmiði þurfum við öll að leggja okkar að mörkum. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Íslensk tunga Innflytjendamál Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar