Kæru sjúkratryggingar, má ég eignast barn núna? Nína Guðrún Arnardóttir skrifar 11. mars 2026 11:30 Þann 1. desember 2022 gekk samningur um niðurgreiðslu á aðgerðum vegna endómetríósu í gegn. Þáverandi heilbrigðisráðherra skrifaði að „það er mikið gleðiefni að samningar hafi náðst um þessar mikilvægu aðgerðir. Eins er samningurinn mikilvægur liður í framtíðarfyrirkomulagi þessara aðgerða.“ Nú hefur hinsvegar fjármagn verið skert aftur og lítið hefur verið fjallað um það. Þessi samningur var stórt skref í bættri þjónustu við fólk með endómetríósu en endómetríósa, eða endó, er langvinnur fjölkerfa sjúkdómur sem leggst á um 10% fólks með leg. Greiningarferlið á endó er flókið, en helstu einkenni endó eru miklir verkir, bólgur og ófrjósemi. Þekking á endó er sem betur fer alltaf að aukast, en sem dæmi þá beið ég í þrettán ár eftir greiningu. Á þessum þrettán árum af verkjum urðu óafturkræfar skemmdir á innri líffærum mínum, sérstaklega ristli, miklir samgróningar mynduðust og lífsgæði mín voru virkilega skert. Það að greiningartíminn sé að meðaltali 10 ár er mikið áhyggjuefni en með þessari skerðingu á þjónustu batnar ástandið ekki í bráð. Með samningnum við sjúkratryggingar árið 2022 gat fólk með endómetríósu farið í þær aðgerðir sem það þurfti á að halda bæði hjá Klíníkinni og hjá Landspítalanum. Þá fékk fólk val um hvar það sótti þjónustu, en einn færasti sérfræðilæknir í endómetríósu starfar hjá Klíníkinni. Núna standa málin hins vegar þannig að fjármagn til niðurgreiðslu þessara aðgerða var skert núna um áramótin. Undirrituð átti að fara í aðgerð í mars, en mér var tjáð það í símtali við lækni í janúar að biðlistinn hefði lengst upp í eitt og hálft ár. Í mínu tilfelli þarf ég á þessari aðgerð að halda vegna þess að endómetríósa veldur ófrjósemi og ég get ekki orðið barnshafandi nema hún sé fjarlægð. Það tók mig tvö ár að verða ólétt af fyrsta barninu mínu og það gekk ekki fyrr en ég fór í aðgerð á Klíníkinni þar sem fjórða stigs endómetríósa var greind og fjarlægð. Í samráði við minn lækni hafði ég því ákveðið að láta á það reyna að eignast annað barn, og næsta skref í því ferli var áætluð aðgerð í mars. Nú stend ég því frammi fyrir eins og hálfs árs biðlista, þar sem aðgerðirnar eru ekki lengur niðurgreiddar í því magni sem þarf og ég fæ því engu um það ráðið hvenær ég eignast næsta barn. Á einu og hálfu ári getur endómetríósa valdið miklum skaða á innri líffærunum mínum og því er óvíst að ég geti yfir höfuð orðið barnshafandi eftir þann tíma. Eitt og hálft ár af óbærilegum verkjaköstum, eitt og hálft ár af óvissu, eitt og hálft ár af bið. Þess má geta að í slíkum verkjaköstum þarf að leita á bráðamóttöku Landsspítala til þess eins að komast að hjá endóteyminu sem er meingallað verkferli þar sem ég veit nákvæmlega hvað er að og ég er greind með endómetríósu. Aðrar skoðanagreinar (Ákall um breytingar - Vísir ) hafa verið skrifaðar um þjónustu við fólk með endó á bráðamóttöku og á kvennadeild og því verður ekki farið meira út í það hér. Ég er í kapphlaupi við tímann um að verða ólétt og eftir því sem ég verð eldri minnka líkurnar á því verulega. Eftir eitt og hálft ár er september 2027. Það er ómögulegt að vita hvernig ástandið á þjónustu við fólk með endó verður þá. Kemst ég í aðgerðina þá? Má ég þá eignast annað barn? Eða verður það orðið of seint? Höfundur er í varastjórn endósamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjúkratryggingar Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar