Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Birgir Olgeirsson skrifar 11. mars 2026 13:12 Íslandsbanki segir versnandi skammtíma verðbólguhorfu og hækkandi verðbólguvæntingar verða ástæðu stýrivaxtahækkunar Vísir/Vilhelm Íslandsbanki spáir 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun þann 18. mars. Versnandi skammtímaverðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar eru taldar af bankanum munu þar ríða baggamuninn þótt talsverðar líkur séu á óbreyttum vöxtum og hertri framsýnni leiðsögn. Vaxtalækkunarferli verði síðar á ferð en áður var búist við.
Gangi spá bankans eftir verða meginvextir bankans 7,5%, líkt og þeir voru frá maí fram í nóvember í fyrra. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í einum rómi að halda stýrivöxtum óbreyttum í febrúar þrátt fyrir vaxandi verðbólgu. Þau sem standa að greiningunni hjá Íslandsbanka segja að þeim, ásamt öðrum, hafi þótt nefndin vera rólegri í febrúar en efni stóð til, sér í lagi með tilliti til nýlegrar þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.„Eftir á að hyggja hefði verið heppilegra að sleginn hefði verið fastari tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar þá enda hafa horfur síst batnað síðan. Þá virtist fremur lítið hafa verið rætt um möguleikann á hækkun vaxta ef marka má fundargerð febrúarfundanna þótt vaxtahækkun hafi vissulega borið á góma,“ segir í greiningu Íslandsbanka. Í febrúar taldi nefndin að þótt verðbólga hefði aukist frá nóvember og verðbólguþrýstingur enn verið talsverður, meðal annars vegna breiðra verðhækkana og hárrar verðbólguvæntingar, væru jafnframt skýr merki um kólnun í hagkerfinu, þar á meðal á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði, og útlit fyrir að verðbólga hjaðnaði þegar liði á árið; óvissan væri þó áfram mikil vegna launahækkana og því gæti reynst nauðsynlegt að halda vöxtum óbreyttum lengur en ella eða jafnvel hækka þá aftur ef verðbólguhorfur versnuðu frekar. Greiningardeildin vonast til þess að með hjaðnandi verðbólgu og auknum slaka í hagkerfinu skapist rými til vaxtalækkunar sem staðið gæti fram eftir árinu 2027 og lokið með stýrivexti í kringum 6%. Forsenda fyrir frekari lækkun vaxta umfram það væri að verðbólga næði niður í markmið og/eða efnahagsþróunin verði markvert óhagstæðari en greiningardeildin gerir ráð fyrir.
Seðlabankinn Íslandsbanki Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira