Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 14. mars 2026 09:02 Ákvæði 11. gr. í drögum að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum er algerlega óásættanlegt. Með því að kveða á um opinbera birtingu niðurstaðna fyrir einstaka skóla, í samanburði við landsmeðaltöl, er verið að innleiða kerfi sem byggir á ómarktækum og skaðlegum samanburði. Slík nálgun samræmist hvorki lögum um grunnskóla, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, lögum um farsæld barna né þeirri sýn á námsmat sem birtist í aðalnámskrá grunnskóla. Sá samanburður sem lagt er upp með er jafnframt fræðilega og tölfræðilega ómarktækur. Skólar starfa við mjög ólíkar aðstæður; þeir eru mismunandi að stærð, með ólíkan nemendahóp, félagslegar forsendur, tungumálabakgrunn og stuðningsþarfir. Rannsóknir á sviði menntunarfræða hafa ítrekað sýnt að opinber birting samanburðar á prófaniðurstöðum skóla endurspeglar fyrst og fremst félagslegan bakgrunn nemenda fremur en gæði skólastarfs. Slík birting leiðir því gjarnan til stimplunar skóla og nemendahópa, eykur félagslegan ójöfnuð og skapar rangar hvata í skólastarfi, þar sem áhersla færist frá námi og þroska yfir í mælikvarða sem gefa takmarkaða mynd af raunverulegu skólastarfi. Ákvæðið gengur einnig gegn meginreglum Barnasáttmálans um að ákvarðanir sem varða börn skuli taka mið af bestu hagsmunum þeirra og að þeim sé tryggt jafnræði og vernd gegn mismunun. Þegar skólar eru settir í opinberan samanburð skapast hætta á að börn verði óbeint flokkuð eða stimpluð eftir búsetu eða bakgrunni. Slíkt samræmist illa bæði sjónarmiðum sáttmálans og markmiðum laga um farsæld barna. Þá brýtur þessi nálgun í bága við hlutverk námsmats samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Þar er námsmat skilgreint sem faglegt tæki sem á að styðja við nám og kennslu, veita endurgjöf og stuðla að umbótum í skólastarfi. Því er ekki ætlað að þjóna sem opinbert orðsporsmat eða skapa samkeppni milli skóla. Þegar niðurstöður eru birtar á þann hátt sem hér er lagt til breytist tilgangur matsins frá faglegu umbótatæki yfir í opinbert samanburðarkerfi. Birting niðurstaðna á skóla er sérstaklega varasöm í litlu samfélagi eins og á Íslandi. Þrátt fyrir fullyrðingar um ópersónugreinanleika er raunveruleg hætta á að hægt sé að tengja niðurstöður við tiltekna nemendahópa eða samfélög. Sú hætta varð bersýnileg þegar niðurstöður lesfimiprófa voru birtar afturvirkt án samráðs við skóla eða sveitarfélög. Sú framkvæmd var ófagleg og kom fagfólki í skólakerfinu að óvörum. Því er nauðsynlegt að endurskoða 11. grein reglugerðardraganna og fella brott heimild til opinberrar birtingar niðurstaðna einstakra skóla. Gögn úr samræmdu námsmati eiga að nýtast sem faglegt verkfæri til umbóta og stuðnings innan skólakerfisins, í samræmi við lög, barnaréttindi og þá menntastefnu sem íslenskt samfélag hefur mótað. Í samráðsgátt bárust fjölmargar og vel rökstuddar athugasemdir frá sérfræðingum í skólakerfinu gegn þessari birtingu. Að virða slíkar ábendingar að vettugi er ekki aðeins óskynsamlegt heldur ber einnig vott um vanvirðingu gagnvart fagþekkingu þeirra sem starfa daglega með börnum og sinna menntun þeirra. Ef raunverulegur vilji er til samráðs og samstarfs í menntamálum verður að hlusta á raddir fagfólks. Eða er það virkilega svo að fagþekking skólafólks telst ekki marktæk þegar ákvarðanir eru teknar um menntakerfið? Höfundur er menntunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar