Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Ómar Þór Kristinsson skrifar 16. mars 2026 09:00 Nú stöndum við á krossgötum. Nýtt deiliskipulag Garðabæjar fyrir Vetrarmýri og Smalaholt boðar miklar breytingar sem munu hafa bein áhrif á eitt dýrmætasta útivistarsvæði okkar. Smalaholtið er ekki bara „landsvæði“ á teikniborði skipulagsfræðinga. Þetta er lifandi skógur sem sjálfboðaliðar í Skógræktarfélagi Garðabæjar hafa ræktað af alúð síðan 1988. Þar er að finna friðsæld, skjól og einstakt lífríki sem er bæjarbúum ómetanlegt í daglegri útivist og er algjör náttúruparadís. Í áætlunum er gert ráð fyrir að skógurinn skerðist um 17ha vegna mótunar á íþróttasvæði og byggingasvæði við Miðgarð sem mun þrengja að núverandi golfbrautum í Mýrinni. Í stað þess að endurhugsa heildarskipulagið á forsendum náttúrunnar, á að „leysa“ málið með því að ryðja elsta og þéttasta hluta Smalaholtskógar. Smalaholtið skipar sérstakan sess sem eitt af elstu og fallegustu útivistarsvæðunum í Garðabæ og nágrenni. Þótt íþróttir séu mikilvægar, þá má það ekki gerast á kostnað þeirra fáu samfelldu grænu svæða sem við eigum eftir. Þegar skógur er einu sinni fargað, tekur áratugi að endurheimta hann. Við þurfum að spyrja okkur: Er nauðsynlegt að fórna grónu skóglendi fyrir frekari mannvirkjagerð? Nýtt skipulag Garðabæjar fyrir Vetrarmýri, Golfvöllinn og Smalaholt. Þar er gert ráð fyrir vegtengingu úr Hnoðraholti inn á Öldusali – vegur sem mun gjörbreyta umferðarflæði og lífsgæðum íbúa í Þorrasölum. Íbúar Þorrasala hafa mótmælt ítrekað bæði við Garðabæ og Kópavogsbæ. Í gildi er samkomulag milli Kópavogs og Garðabæjar sem kveður á um að ef þessi vegur kæmi, yrði hann að fara í stokk. Garðabær heldur því fram að þessi vegur hafi „alltaf verið á skipulagi“, en staðreyndin er sú að í fyrsta skipulagi frá 2006 var hann hvergi að finna. Einnig ættu núverandi íbúar eiga ekki að gjalda fyrir skipulagsmistök fortíðarinnar. 17 hektarar af skógi fórnað fyrir „hina sérvöldu“ Eitt alvarlegasta skrefið í þessu nýja skipulagi er ákvörðun Garðabæjar um að eyða hátt í 17 hekturum af ræktuðum skógi sem almeningur hefur fengið að njóta til þess eins að rýma fyrir nýjum golfbrautum. Það er grátlega kaldhæðnislegt að á tímum þar sem rætt er um kolefnisbindingu og umhverfisvernd, skuli eiga að eyða allt að 90% af tæplega 40 ára gömlum skógi á þessu svæði. Skógurinn veitir skjól, dregur úr hávaða frá umferð, eykur loftgæði og stuðlarð að betri lýðheilsu manna. Svör bæjarins er að það á að „reyna að halda í sem flest tré“ skjóta skökku við þegar rýma þarf heilu golf brautirnar í þéttri skógarhlíð. Hvenær varð það forgangsmál að fórna almenningsskógi fyrir leikvöll fárra útvalda? Skógrækt er fjárfesting í framtíðinni. Við eigum að byggja upp skóglendi, ekki eyða því. Með því að fórna þessum 17 hekturum er verið að rýra verulega það litla framboð af ræktuðum skógi sem íbúar hafa aðgang að. Samhliða uppbyggingu í Hnoðraholti vaknar sú spurning: Á þessi náttúruperla að nýtast þúsundum íbúa og komandi kynslóðum, eða á hún að vera einkaleikvöllur fyrir 2.000 meðlimi GKG? Hvar liggur forgangurinn – hjá almenningi eða fámennum hópi útvalda? Hvað myndu framtíðar íbúar í Hnoðraholti vilja? Hver á að borga? Það er ljóst að þessi áform hanga saman: Til þess að leggja veginn fyrir aftan Þorrasali þarf að færa 13. braut golfvallarins upp í Smalaholtsskóg og leggja veginn úr Hnoðraholti inn á Öldusali yfir núverandi 13. Braut. Ég spyr: Eiga skattgreiðendur í Garðabæ og Kópavogi að fjármagna eyðingu skógarins og gerð nýrra golfbrauta? Ég efast stórlega um að meirihluti íbúa sé tilbúinn að borga fyrir fórn á þessari náttúruperlu. Hefur verið gerð raunhæf kostnaðaráætlun fyrir þessa framkvæmd og umhverfistmat fyrir þann náttúruskaða sem henni fylgir? Skógrækt er fjárfesting í framtíðinni. Við eigum að vernda og stækka skóglendi bæjarins. Ég skora á bæjaryfirvöld að endurskoða þessi áform. Smalaholtskógur á að fá að standa og hætt við hugmyndir um veg milli Hnoðraholts og Öldusalir – okkur og komandi kynslóðum til hagsbóta. Undirskriftasöfnun hefur verið hrint af stað vegna fyrirhugaðar vegtengingar úr Hnoðraholti inn á Öldusali. Höfundur er aðstoðarvarðstjóri hjá Isavia og ökuleiðsögumaður. p.s. Greinahöfundur hefur ekkert á móti Golf íþróttinni eða þeim sem stunda hana. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Golfvellir Garðabær Skipulag Mest lesið Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson Skoðun Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir Skoðun Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir Skoðun Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson skrifar Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson skrifar Skoðun Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Að byggja bæ – eða samfélag? Herdís Anna Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Hinn þríklofni Jóhann Páll Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áskoranir Ísafjarðarbæjar í húsnæðismálum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Fjármagn í þágu fjölskyldna Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra Bessí Þóra Jónsdóttir skrifar Skoðun Hólastóllinn Hjalti Pálsson skrifar Skoðun 8. sætið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Íþróttamannvirki til sölu fyrir atkvæði Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingin Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Snákaolía“ Miðflokksins Thelma B. Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar sálfélagsleg áhætta verður rekstraráhætta Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Nýsköpun þrífst ekki í óvissu Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson skrifar Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar Skoðun Kópavogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál sem lýðræðislegt verkefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar
Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar
Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar
Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar
Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar