Körfubolti

Almar með í Mars­fárinu og bætist í fá­mennan hóp

Sindri Sverrisson skrifar
Almar Orri Atlason fær að taka þátt í einu vinsælasta íþróttamóti hvers árs í Bandaríkjunum; Marsfárinu í háskólakörfuboltanum.
Almar Orri Atlason fær að taka þátt í einu vinsælasta íþróttamóti hvers árs í Bandaríkjunum; Marsfárinu í háskólakörfuboltanum. Getty/Frank Jansky

Almar Orri Atlasyni og félagar í Miami Ohio háskólanum hlutu náð fyrir augum valnefndar og fá nú að fullkomna tímabilið sitt með því að taka þátt í sjálfu Marsfárinu (e. March Madness) í bandaríska háskólakörfuboltanum

Aðeins 68 bestu háskólalið Bandaríkjanna eru með í Marsfárinu. Þar af fá 32 lið sjálfkrafa sæti með því að vinna sína svæðisdeild en svo eru 36 lið valin út frá ýmsum þáttum.

Almar og félagar voru vissulega líklegir til að verða fyrir valinu, í ljósi þess að þeir unnu alla leiki sína í deildarkeppninni, 31 talsins, og enduðu því efstir í Mið-Ameríku deildinni. Þeir féllu hins vegar úr leik í fyrstu umferð í úrslitakeppni deildarinnar og aðeins sigurliðið komst beint inn í Marsfárið. Þess vegna þurftu þeir að bíða og vona.

Niðurstaða valnefndar var svo tilkynnt í gær og nú þurfa leikmenn Miami Ohio ekki lengur að treysta á neina aðra en sjálfa sig. 

Þeir þurfa hins vegar að byrja á að mæta SMU háskólanum á miðvikudaginn, í sérstöku umspili átta lægst skrifuðu skólanna.

Sigur þar myndi tryggja Almari og félögum einvígi við Tennessee í 64-liða úrslitunum sem fram fara á fimmtudag og föstudag.

Almar bætist nú í hóp þeirra örfáu Íslendinga sem fengið hafa að taka þátt í Marsfárinu sem er svo sannarlega afar vinsælt í Bandaríkjunum. Jón Axel Guðmundsson varð fyrir átta árum fyrsti íslenski karlinn til að komast þangað, með Davidson háskólanum, en Helena Sverrisdóttir og Dagný Lísa Davíðsdóttir hafa einnig afrekað það kvennamegin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×