Þúsundir hringja í Skattinn Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. mars 2026 12:43 Skilin eru komin upp í 74,3% á þessum tímapunkti sem er tveimur prósentum meira en á sama tíma í fyrra. samsett Rúmlega 267 þúsund manns hafa skilað skattframtalinu þetta árið en landsmenn hafa verið eilítið duglegri við skilin en í fyrra. Skatturinn heldur úti sérstakri símavakt sem fólk getur leitað til ef það er í vandræðum. Þangað streyma símtölin.
Opnað var fyrir skattframtal einstaklinga vegna tekna ársins 2025 þann 27. febrúar. Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri einstaklingsdeildar hjá skattinum, segir að vel hafi gengið í ár. „Klukkan sjö í morgun höfðu rétt rúmlega 267 þúsund einstaklingar skilað, þar af skiluðu tæp átta þúsund yfir helgina og eins og venjulega þá skiluðu langflestir síðustu tvo daga innan skilafrests og voru tæplega 70 þúsund sem skiluðu á fimmtudag og föstudag í síðustu viku. Heimtur voru nokkuð góðar þetta árið.“ Hversu margir eiga eftir að skila? „Skilin eru komin upp í 74,3%.“ En hvað gerist ef einstaklingur skilar ekki framtalinu? „Það eru ekki beinlínis viðurlög en berist framtal ekki þá áætlum við skatta þeirra fyrir síðasta ár og við afgreiðum öll framtöl sem berast innan framtalsfrests og reynum eftir fremsta megni að afgreiða þau sem berast fljótlega eftir þann frest. Það er enn þá opið fyrir framtalsskil þannig að við beinum því til fólks sem eftir á að skila að gera það sem allra fyrst.” Svara um 17 þúsund símtölum Ef við gefum okkur að það sé þarna einhver hluti sem er ekki bara að gleyma sér heldur er í bölvuðum vandræðum með skattframtalið og þarfnast aðstoðar. Hvert er hægt að snúa sér? „Þeir geta leitað til okkar, við veitum aðstoð áfram bæði í síma og með tölvupósti og ef þetta eru mikið þyngri eða flóknari mál þá er gott að leita til fagaðila.” Hún segir að fjölmargir nýti sér aðstoð skattsins. „Við erum með sérstaka símavakt og sérstakt símanúmer sem er opið meðan á framtalsfresti stendur og erum að svara svona um það bil 17 þúsund símtölum beint í það símanúmer.”
Skattar, tollar og gjöld Fjármál heimilisins Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira