Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Lovísa Arnardóttir skrifar 17. mars 2026 06:45 Arna María segir vont að geta ekki framleitt í svo langan tíma. Aðsendar Framleiðsluvélin sem notuð er til að búa til hafraskyr Veru Örnudóttur bilaði nýlega og ekki verður hægt að framleiða meira af veganskyrinu fyrr en í fyrsta lagi í maí. Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir það högg og vont fyrir bæði fyrirtækið og viðskiptavini. „
Við erum að færa framleiðsluna á milli hæða og þessi bilun varð við flutninginn, varahluturinn er ekki fáanlegur og við erum í algjöru framleiðslustoppi. Við sjáum ekki fram á að geta framleitt meira fyrr en í fyrsta lagi í maí. Við vonum auðvitað að það gerist fyrr en ég held að það sé ekki raunhæft að tala um að það verði af því fyrr en í maí,“ segir Arna María í samtali við Vísi. Hún segir þetta augljósan tekjumissi fyrir fyrirtækið og þjónustuskerðingu við viðskiptavini. Hún segir varahlutinn sem vantar nauðsynlegan fyrir framleiðsluna. Hafrajógúrt með grískum hætti. Aðsend „Þetta er sérstök framleiðsluaðferð og þessi varahlutur er notaður til að ná fram ákveðnum gæðum á vöru. Þetta er fersk vara og því notum við ekki mikið af aukaefnum. Svo erum við líka að reyna að hafa þetta eins líkt mjólkurvörum og við getum og það þarf ákveðinn varahlut til þess og það er hann sem fæst ekki. Þannig það stoppar okkur alveg.“ Vörumerkið Vera er afsprengi Örnu mjólkursölu. Vörurnar eru allar vegan og komu fyrst á markað 2022 eftir að hafa verið í þróun í um eitt og hálft ár. Öll framleiðsla og pökkun á vörum frá Veru Örnudóttur fer fram í Bolungarvík. Högg fyrir viðskiptavini og fyrirtækið „Þetta er dálítið högg. Það er nokkuð úrval af vegan mjólkurafurðum en við vorum fyrst með íslenska framleiðslu á svona ferskum haframjólkurvörum og fólk hefur tekið mjög vel í þær. Ég held það sé ágætlega stór hópur sem er vegan eða þolir illa mjólk sem hefur verið að velja þennan valkost fram yfir annan. Þannig þetta er vont, bæði fyrir okkur að missa út framleiðsluna í allan þennan tíma, en líka fyrir viðskiptavini okkar. Okkur þykir virkilega miður að geta ekki boðið þeim upp á vöruna okkar.“ Arna María telur að það sem síðast var framleitt sé búið í öllum verslunum og ef það er eitthvað enn til heima eða í verslun sé það við það að renna út. Vörurnar eru vinsælar meðal þeirra sem eru vegan og hefur nokkuð verið rætt um framleiðslustöðvunina í hópnum Vegan Ísland. Arna María segir ánægjulegt að fólk bíði spennt eftir vörunni og taki eftir því að hana vanti í hillurnar. Vöruúrvalið verði það sama þegar þau geta hafið framleiðslu á ný. „Við hlökkum til að framleiða aftur og vonum að fólk taki vel í vörurnar þegar þær koma aftur í hilluna.“ Vissu varla hvað laktósalaust þýddi Hún segir að frá upphafi hafi vörunum verið afar vel tekið, bæði Veru og Örnu. „Við byrjuðum auðvitað 2013 með laktósalausar mjólkurvörur. Það var rosalega takmarkað úrval þá og hefur mikið breyst síðan. Þegar við byrjuðum vissi fólk ekki almennilega hvað það þýddi að vera án laktósa. Nú er það breytt. Það var svona svipað með þetta. Okkur fannst vanta ferska vegan vöru og fórum að prófa okkur áfram og úr varð þessi vörulína,“ segir hún og að tæknin sem sé notuð til að búa til hafraskyrið sé einstök í heiminum. „Það er svo skemmtilegt að þetta heppnaðist svona vel og að fólk hafi tekið svona vel í þetta.“
Matvælaframleiðsla Bolungarvík Neytendur Landbúnaður Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira