Herferð Heimildarinnar gegn Miðflokknum Breki Atlason skrifar 17. mars 2026 13:45 Falsfréttir eru alvarlegt mál. Þær grafa undan trausti, skekkja pólitíska umræðu og valda sundrungu í samfélaginu. Fjölmiðlar bera því mikla ábyrgð að segja satt og rétt frá, ekki síður að setja hlutina sanngjarnlega fram. Undanfarið hefur Heimildin, í skrifum Steindórs Grétars Jónssonar blaðamanns og fyrrum framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna, fjallað mikið um mig og Miðflokkinn með þeim hætti að lesandinn er leiddur að niðurstöðu sem staðreyndirnar sjálfar styðja ekki við. Nýjasta dæmið er umfjöllun um meintan „leynifund“ Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar með Repúblikönum. Þegar fréttin sem fylgir smellibeitu fyrirsögninni er lesin kemur í ljós að Sigmundur Davíð hafi sótt ráðstefnu í Gautaborg sem fjallaði um samskipti Norðurlandanna og Bandaríkjanna. Fyrirsögnin er þó „leynifundur“ sökum þess að innan dagskrár ráðstefnunnar er kvöldverður þar sem einstaklingar sem eru ekki að skapi Heimildarinnar sóttu. Lesandinn er áfram leiddur í gegnum langa kafla um þessa aðila sem voru á sömu ráðstefnu og allar þeirra tengingar við MAGA-hreyfinguna. Ég held að flestir viti að þegar maður mætir á ráðstefnu þá hefur maður litla stjórn á því hverjir aðrir mæta á ráðstefnuna og fara stjórnmálamenn sjaldnast fram á það að fá að sjá gestalista fyrirfram. Þetta reynist auka atriði fyrir blaðamönnum Heimildarinnar. Í umfjöllun Heimildarinnar er einnig farið yfir hugveitur og bandaríska milljarðamæringinn Charles Koch. Þetta er klassísk aðferð: veik tengsl eru sett í dramatískt samhengi þar til þau virðast verða eitthvað miklu stærra. Dagur B. Eggertsson fer í skotgrafarhernað Það sem er kannski enn athyglisverðara er hvernig þessar heimatilbúnu tengingar rata síðan í ræðu Dags B. Eggertssonar í ræðustól Alþingis. Þar kvaðst Dagur, líkt og Heimildin, ekki ætla að fullyrða neitt en vakti athygli á alvarleika þessa máls, af því gefnu að það væri satt. Málflutningnum var mætt með harðri gagnrýni og segir mun meira um siðferði þingmannsins sem grípur til skotgrafahernaðar með augljósa falsfrétt Heimildarinnar að vopni. Fréttamaður RÚV, Bergsteinn Sigurðsson, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tóku einnig þátt í að dreifa þessum uppspuna í Silfrinu sem og Gísli Marteinn í Vikunni. En ekkert þeirra virðist hafa virkilega lesið grein Heimildarinnar, bara fyrirsögnina. Fjarstæð tenging við bandaríska milljarðamæringa Meint tenging við Koch-bræðurna sem Heimildin reynir að draga upp er eflaust hlægilegasta dæmið. Þegar allt er rakið liggur hún einfaldlega í gegnum alþjóðleg stúdentasamtök sem ég er í, ekki Miðflokkurinn. Students for Liberty eru stór alþjóðleg samtök með sjálfboðaliða í tugum landa þar sem þúsundir ungmenna vinna að frelsi og mannréttindum um allan heim. Sú „Koch-tenging“ sem dregin er upp snýr einungis að því að bandaríski armur samtakanna hafi fengið styrki frá samtökum tengdum Koch-netinu, en sá styrkur er svo lítill að það er varla hægt að tala um nokkra raunverulega tengingu. Styrkurinn nemur um 0,75% af heildarstyrkjum samtakanna og fór eingöngu í bandarísk verkefni. Evrópski hluti samtakanna, sem ég tilheyri, hefur aldrei fengið slíkan stuðning. Að gera þetta að einhverju víðtæku tengslaneti er svo langsótt að það segir allt sem segja þarf um umfjöllun Heimildarinnar og eru þetta allt opinberar upplýsingar sem hver sem er getur kynnt sér í ársskýrslum samtakanna. Heimildin gerir þetta að stór frétt með því að birta mynd af Sigmundi Davíð og Charles Koch og þar með gefið í skyn að Kock-bræður séu að fjármagna Miðflokkinn og ég væri lykilmaður í þeim tengingum. Með svipuðum rökum og Heimildin notar mætti tengja nánast alla jarðarbúa við hvern sem er. Enda er það vel þekkt hugmynd í félagsfræði að allir séu tengdir í gegnum um sex milliliði, six degrees of separation á ensku. Gagnrýnin blaðamennska er nauðsynleg en hér er um ekkert nema pólitískan áróður að ræða. Heimildin gæti skrifað alveg eins grein um alla flokka á Alþingi sem hafa sótt alþjóðlega viðburði, stefna þeirra virðist þó vera einhver persónuleg herferð gegn Miðflokknum og það er spurning hvaðan það skyldi koma? Steindór var framkvæmdastjóri ungra jafnaðarmanna, Dagur B. er þingmaður Samfylkingarinnar, Gísli Marteinn er viðskiptafélagi með oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík og Kratinn, póstlisti Samfylkingarinnar, var ekki lengi að fjalla um þetta „skúbb“ enda ritstýrður af Þórði Snæ, fyrrum ritstjóra Heimildarinnar. Það er kannski við hæfi að enda á því að minna jafnaðarmennina á Heimildinni á slagorð Samfylkingarinnar: „Við erum sterkari saman“. Þó Heimildin myndi eflaust bæta við „..svo lengi sem við erum ekki í Miðflokknum“. Höfundur er alþjóðafulltrúi Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Bandaríkin Fjölmiðlar Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun