FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2026 18:16 Stuðningsmaður íranska fótboltalandsliðsins á leik liðsins á síðasta heimsmeistaramóti í Katar 2022. Getty/Ulrik Pedersen Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, virðist hafa útilokað að leikir Írans á heimsmeistaramótinu í sumar verði færðir frá Bandaríkjunum til Mexíkó.
Forseti íranska knattspyrnusambandsins hafði sagt að viðræður væru í gangi um að færa leiki til að tryggja öryggi leikmanna sinna. Þetta kemur í kjölfar árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran, sem hefur brugðist við með árásum á Ísrael og bandalagsríki Bandaríkjanna við Persaflóa. Hins vegar sagði FIFA í yfirlýsingu á þriðjudag að það hlakkaði til að sjá þjóðir „keppa samkvæmt leikjadagskránni“ eins og talsmaður sambandsins orðar það. Bandaríkin eru gestgjafar heimsmeistaramótsins, sem fer fram milli 11. júní og 19. júlí í sumar, ásamt Kanada og Mexíkó. Fifa was forced to clarify its position after the president of the Iranian federation, Mehdi Taj, said “negotiations” had taken place over switching the country’s games from the United States@ben_rumsby has more ⬇️https://t.co/VbOb3eqCuN pic.twitter.com/UdoLGrS2Ut— Telegraph Football (@TeleFootball) March 17, 2026 Íran á að mæta Nýja-Sjálandi 16. júní og Belgíu 21. júní, báðir leikir í Los Angeles, og síðan er síðasti leikurinn í riðlakeppninni á móti Egyptalandi í Seattle 27. júní. Í síðustu viku sagði Donald Trump forseti Bandaríkjanna að þótt Íranar séu „velkomnir á heimsmeistaramótið“ telji hann „ekki viðeigandi“ að þeir mæti „vegna eigin öryggis og að þeir myndu þá setja sig í lífshættu“. „Þegar Trump hefur beinlínis lýst því yfir að hann geti ekki tryggt öryggi íranska landsliðsins munum við vissulega ekki ferðast til Ameríku,“ sagði Mehdi Taj, forseti íranska knattspyrnusambandsins, í færslu á samfélagsmiðlareikningi íranska sendiráðsins í Mexíkó. „Við erum í viðræðum við FIFA um að halda leiki Írans á heimsmeistaramótinu í Mexíkó.“ Iran says it is "in talks" to hold its World Cup matches in Mexico.However, Fifa appears to have ruled out the possibility after stating it was looking forward to nations "competing as per the match schedule". pic.twitter.com/YKjfDY3AKi— BBC Sport (@BBCSport) March 17, 2026 Talsmaður FIFA sagði: „FIFA er í reglulegu sambandi við öll þátttökusambönd, þar á meðal Íran, til að ræða skipulagningu heimsmeistaramótsins. FIFA hlakkar til að sjá öll þátttökulið keppa samkvæmt leikjadagskránni sem tilkynnt var 6. desember 2025.“ Íran, sem hefur tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu í fjórða sinn í röð, ákvað að draga sig ekki úr keppninni síðasta sumar þegar Bandaríkin sprengdu upp þrjár kjarnorkustöðvar í landinu. Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur sagt að forseti Bandaríkjanna hefði sagt honum að Íranar væru „velkomnir að keppa“ á mótinu í sumar, þrátt fyrir að löndin ættu í stríði. Ahmad Donyamali, íþrótta- og æskulýðsmálaráðherra Írans, sagði þá að „við neinar kringumstæður höfum við viðeigandi skilyrði til að taka þátt í heimsmeistaramótinu“.
FIFA Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira