Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2026 11:26 Sátt var gerð milli Míu og Samkeppniseftirlitsins árið 2022. Um endurskoðun á henni er að ræða. Vísir/Vilhelm Míla og Samkeppniseftirlitið (SKE) hafa gert með sér nýja sátt sem felur í sér endurskoðun á sátt frá árinu 2022, sem gerð var í kjölfar sölu Mílu til innviðasjóðs undir stjórn Ardian France SA.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Mílu og Samkeppniseftirlitinu, en við söluna árið 2022 voru eignatengsl milli Mílu og Símans rofin, en á sama tíma var gerður langtíma heildsölusamningur milli Mílu og Símans. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að eftir ítarlega rannsókn hafi nú verið gerðar breytingar á skilyrðum fyrri sáttar, einkum vegna breyttra markaðsaðstæðna á mörkuðum fyrir heimtaugar og gagnaflutning um þær. „Við rannsóknina komu fram vísbendingar um að Míla hefði brotið tiltekin skilyrði. Míla hefur nú viðurkennt brot og greiðir 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þeirra. Míla og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt um framangreindar málalyktir,“ segir í tilkynningunni. Um málið segir að kaup Ardian á Mílu af Símanum á árinu 2022 hafi falið í sér samruna sem hafi verið til þess fallinn að raska samkeppni með umtalsverðum hætti. „Var því talið nauðsynlegt að grípa til íhlutunar sem að lögum gat falið í sér ógildingu samrunans eða setningu skilyrða. Samkeppniseftirlitið, Ardian og Míla voru sammála um að unnt væri að vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans með setningu skuldbindandi skilyrða. Gengið var frá sátt um þessi skilyrði haustið 2022, sbr. frétt frá 15. september sama ár. Skilyrðin fólu annars vegar í sér að gerðar voru breytingar á langtíma heildsölusamningi milli Símans og Mílu, sem m.a. lá til grundvallar verðmati á Mílu við kaupin. Þannig var dregið verulega úr skuldbindingum um viðskipti Símans við Mílu sem hefðu að óbreyttu útilokað að nær öllu leyti að keppinautar Mílu gætu boðið Símanum þjónustu, en Síminn er stærsti kaupandi að innviðaþjónustu á landinu. Hins vegar skuldbatt Míla sig til að lúta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni vegna sterkrar stöðu sinnar á markaðnum, en skilyrðin bönnuðu samkeppnishamlandi vöndlun og samtvinnun þjónustuþátta og tryggðu jafnan aðgang að kerfum, þjónustu og upplýsingum frá Mílu. Ósk um endurskoðun – rannsókn á brotum Á árinu 2024 óskaði Míla eftir endurskoðun á skilyrðunum, þ.e. að þau yrðu felld niður eða þrengd verulega vegna breyttra markaðsaðstæðna. Við athugun á þeirri beiðni komu fram vísbendingar um brot á tilteknum skilyrðum og samhliða komu fram kvartanir aðila á markaði í garð Mílu. Í mars 2025 var Mílu kynnt frummat Samkeppniseftirlitsins vegna ætlaðra brota á skilyrðunum. Í framhaldi óskaði Míla eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið með það að markmiði að ljúka rannsókn eftirlitsins á brotum Mílu og endurskoðun á gildandi skilyrðum. Sáttaviðræður hófust í september 2025. Viðurkenning á brotum og sektir Með nýgerðri sátt við Samkeppniseftirlitið hefur Míla fallist á að tíðni og umfang samskipta milli Mílu og Símans frá október 2023 til desember 2024 hafi verið til þess fallið að takmarka hvata Símans til að kaupa þjónustu frá keppinautum Mílu, umfram það sem kaupskylda Símans samkvæmt samningi fyrirtækjanna kvað á um. Í þessu hafi falist brot á gildandi skilyrðum. Vegna þessa fellst Míla á að greiða 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Skilyrðum nýrrar sáttar er m.a. ætlað að tryggja enn frekar að samkeppni geti ríkt um þau viðskipti Símans sem falla utan takmarkana heildsölusamningsins við Mílu og að Míla beiti sér ekki fyrir því að viðskiptavinir Símans (heimili og fyrirtæki) séu færð yfir á net Mílu frá netum keppinauta Mílu. Endurskoðun á skilyrðum vegna breyttra markaðsaðstæðna Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós breytingar á stöðu Mílu á mörkuðum fyrir heimtaugar, þ.e. aðgangi að kopar- og ljósleiðaratengingum og markaði fyrir gagnaflutning um heimtaugar (bitastraum). Ljóst er að Míla er enn með sterka stöðu á landsvísu á þessum mörkuðum (landsdekkandi) og býr yfir breiðu þjónustuframboði á öðrum sviðum innviða fjarskipta. Á hinn bóginn hafa aðrir keppinautar, einkum Ljósleiðarinn á sínum starfssvæðum (m.a. höfuðborgarsvæðinu), styrkt mjög stöðu sínu á liðnum árum og er nú með talsvert meiri hlutdeild þar í fjölda tenginga en Míla. Af þessum sökum hefur Samkeppniseftirlitið fallist á að skilyrði um aðgang að kerfum, upplýsingagjöf og bann við samtvinnun og vöndlun gildi ekki nema á þeim landssvæðum þar sem Míla hefur umtalsverðan markaðsstyrk. Er þetta í samræmi við mat Fjarskiptastofu á nauðsyn kvaða á grundvelli fjarkskiptalaga. Verði þessi breyting ekki gerð er hætt á að viðkomandi ákvæði sáttarinnar hamli samkeppni í stað þess að verja hana og efla. Jafnframt eru gerðar breytingar á gildandi skilyrðum í því skyni að skýra þau frekar í ljósi reynslu af framkvæmd þeirra,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlistins.
Samkeppnismál Salan á Mílu Fjarskipti Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum Samstarf Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Fleiri fréttir Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Sjá meira