Körfubolti

Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cade Cunningham féll í gólfið með þeim afleiðingum að lungað féll saman.
Cade Cunningham féll í gólfið með þeim afleiðingum að lungað féll saman. Getty/Patrick Smith

Ein stærsta stjarnan í besta liðinu í Austurdeild NBA-deildarinnar í körfubolta verður frá í langan tíma.

Lunga féll saman hjá Cade Cunningham, stjörnuleikmanni Detroit Pistons, en það fylgir sögunni að samfall lunga Cunningham sé talið vægt tilfelli.

Pistons-menn eru enn að afla upplýsinga um ástand Cunningham og eru óvissir um hversu lengi hann verður frá keppni, að því er heimildarmenn sögðu ESPN.

Nokkur bjartsýni ríkir um að Cunningham verði kominn aftur í tæka tíð fyrir upphaf úrslitakeppninnar, sem hefst 18. apríl.

Cunningham, sem er meðal fremstu manna í kapphlaupinu um mikilvægasta leikmann NBA-deildarinnar, fór af velli í leiknum gegn Washington Wizards á þriðjudag og þá var talað um bakverki.

Cunningham virtist hafa meiðst snemma í fyrsta leikhluta þegar hann kastaði sér eftir lausum bolta. Hann spilaði í nokkrar mínútur í viðbót áður en hann var tekinn af velli um miðjan leikhlutann.

Hinn 24 ára gamli Cunningham er með 24,5 stig og 9,9 stoðsendingar að meðaltali í leik á þessu tímabili en aðeins einn leikmaður hefur gefið fleiri stoðsendingar í leik.

Hann hefur spilað 61 leik, sem þýðir að hann er rétt undir 65 leikja viðmiðinu sem þarf til að eiga rétt á verðlaunum deildarinnar fyrir hefðbundið keppnistímabil, svo sem verðmætasti leikmaðurinn, sæti í úrvalsliði NBA og varnarmaður ársins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×