„Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2026 19:29 Kvennalið Þórs frá Akureyri mætir ekki til leiks í leik á móti Selfossi í kvöld. @thorakkarfa Ólafur Torfason, stjórnarmaður hjá Þór Akureyri, skrifaði pistil á samfélagsmiðla þar sem hann útskýrði þá ákvörðun félagsins að senda kvennalið Þórs ekki til leiks á Selfossi í kvöld en þá áttu þeir leik í 1. deild kvenna í körfubolta.
Stjórnarmenn Þórs tóku þá ákvörðun að senda ekki liðið suður og ástæðan er slæmt ferðaveður. Mótanefnd Körfuknattleikssambands Íslands vildi samt ekki fresta leiknum en stjórn Þórs segist ekki vera tilbúin að senda leikmenn sína út í einhverja óvissu. „Hvaða ábyrgð ber ég sem stjórnarmaður og sjálfboðaliði hjá mínu íþróttafélagi?“ spyr Ólafur Torfason í upphafi pistils síns. „Í dag er staðan þannig að kvennalið Þórs í körfubolta á að spila leik á Selfossi. Strax í gær var byrjað að vara við ferðum milli landshluta vegna veðurs og núna er búið að aflýsa öllu flugi. Jú, heiðarnar eru reyndar opnar en víða óveður á milli Reykjavíkur og Akureyrar,“ skrifar Ólafur. „Staðan er því þannig að það er algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna um hvort þær komist á leiðarenda til að spila sinn leik og með óvissu um hvenær þær komist til baka með tilheyrandi kostnaði fyrir félagið,“ skrifar Ólafur en hann segir að svörin frá KKÍ séu að ef liðið mæti ekki til leiks þá verði félagið sektað um nokkur hundrað þúsund krónur. „Valið okkar í stjórninni er einfalt. Við ætlum ekki að senda okkar leikmenn út í einhverja óvissu vitandi það að ferðaskilyrðin eru mjög slæm á landinu. Ég ætla ekki að hafa það á minni samvisku ef eitthvað kæmi fyrir mína leikmenn og borga því frekar sekt upp á einhverja hundrað þúsund krónur en að senda þá út í óvissuna. Það er ekkert ferðaveður eins og staðan er núna,“ skrifar Ólafur eins og sjá má hér fyrir neðan.
Körfubolti Þór Akureyri Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira