Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir, Magnús Þór Jónsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 20. mars 2026 12:16 Réttindi launafólks féllu ekki af himni ofan. Þau eru afrakstur langrar og oft á tíðum harðrar baráttu til að vinna gegn valdaójafnvægi milli starfsfólks og stjórnenda. Ef ekki væri fyrir kjarasamnings- og lögbundin réttindi þá myndu atvinnurekendur ráða einir yfir lífsviðurværi og starfsaðstæðum launafólks. Nú ætlar ríkisstjórnin að ráðast í eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði — að afnema áminningarskyldu. Slík aðgerð dregur úr starfsöryggi allra ríkisstarfsmanna. Með því afnema áminningarskyldu aukast verulega líkur á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum. Stjórnendur hjá ríkinu hafa nú þegar fulla heimild til að bregðast við ef starfsfólk er ekki að standa sig í vinnu. Að halda öðru fram er beinlínis rangt. Það er sanngjörn regla að fólki sé gefið tækifæri til að bæta úr áður en því er sagt upp. Verði áminningarskyldan afnumin verður enginn slíkur varaventill lengur. Skerðing réttinda er ekki mannauðsmál Undanfarin ár höfum við merkt aukna hörku og minni þekkingu á réttindum starfsfólks hjá hinu opinbera. Í stað þess að bæta þekkingu stjórnenda og verklag í mannauðsmálum á lausnin að felast í því að fella reglurnar sjálfar úr gildi. Þessi einhliða skerðing réttinda launafólks er fordæmalaus og vinnubrögðin endurspegla skýrt að málið byggir á hagsmunum stjórnenda og atvinnurekenda en ekki launafólks. Eðlilegra væri að allt starfsfólk á vinnumarkaði hefði sambærileg réttindi eins og opinberir starsmenn hafa í dag til uppsagnarverndar. Á sama tíma og stjórnvöld verja kröftum sínum í að afnema réttindi starfsfólks, glíma margir vinnustaðir hins opinbera við mikla manneklu, starfsmannaveltu, álag í störfum framlínufólks, aukin veikindi starfsfólks — og svo ríkir eins og við vitum, neyðarástand í heilbrigðisþjónustu. Réttindaskerðinguna setja stjórnvöld svo fram sem einhvers konar mannauðsstjórnunarmál til hagsmuna fyrir starfsfólk. Ef það er markmiðið, hvernig væri þá að grípa til aðgerða sem bæta starfsumhverfi opinbers starfsfólks í stað þess að taka af þeim mikilvæg réttindi? Hvaða réttindi hverfa næst? Vinnubrögð ríkisstjórnarinnar þverbrjóta skráðar sem óskráðar reglur um samráð á vinnumarkaði. Fari þessi breyting í gegn mun hún vafalaust verða fordæmi fyrir ríkisstjórnina um frekari einhliða skerðingar réttinda launafólks á vinnumarkaði. Vinnubrögðin við skerðingu réttinda til atvinnuleysisbóta renna enn frekari stoðum þar undir. Þetta slær pólitískan tón sem ýtir undir að síður sé horft til þess hvernig megi bæta réttindi, vinnuskilyrði og aðstæður launafólks. BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hafa tekið höndum saman til að berjast gegn þessari alvarlegu réttindaskerðingu. Saman stöndum við að herferð og krefjumst þess að ríkisstjórnin dragi frumvarpið til baka og einbeiti sér í staðinn að raunverulegum lausnum: að bæta starfsaðstæður, laða til sín og halda í hæft starfsfólk hjá ríkinu. Jafnframt teljum við tímabært að ráðningarvernd alls launafólks sé styrkt þannig að íslenskur vinnumarkaður færist nær því sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Við hvetjum þig til að kynna þér málið á góðáminning.is – og senda stjórnvöldum áminningu. Höfnum afnámi áminningarskyldu! Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þór Jónsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar