Nálaraugað rammaáætlun og markaðsskrifstofa frá 1997 Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar 20. mars 2026 14:03 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur lýst ánægju með rammaáætlun og lýst henni sem „séríslensku nálarauga virkjanakosta“ á Umhverfisþingi í Hörpu. Á sama tíma þreytist hann ekki á að lýsa því yfir að auka skuli orkuöflun. Orkuöflun og verðmætasköpun er vissulega mikilvægur þáttur í því að reka samfélag og Landvernd hefur lýst ánægju með boðað átak í leit og nýtingu jarðhita þar sem ágóðinn kemur til með að gagnast almenningi með augljósum hætti. En að einblína stöðugt á að auka orkuöflun hjá þjóð sem framleiðir meiri endurnýjanlega orku á mann en nokkuð annað ríki veraldar, er varhugavert. Þessi málaflokkur hefur verið einna mest áberandi í riti og ræðu ríkisstjórnarinnar og orðræðan minnir einna helst á árin 2003-2007 í aðdraganda Kárahnjúkavirkjunar. Ráðherra hefur lofað 50% hraðari afgreiðslutíma hjá Orkustofnun, haldið vinnustofu með orkugeiranum um einföldun, flýtimeðferðir og skilvirkni í orkumálum og boðað rýmri heimild ríkisins til eignarnáms til uppbyggingar orkuinnviða. Þetta minnir óþyrmilega á frægan bækling Markaðsskrifstofu íslenskra stjórnvalda árið 1997, þar sem fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði var lofað „minimum red tape“, lágmarks umhverfis- og stjórnsýsluhindrunum. Þá vekur það sérstaka athygli að til þess að auka afhendingaröryggi á Norðausturlandi á að nota 2,2 milljarða úr loftslags- og orkusjóði en stjórn sjóðsins hafði enga aðkomu að því að ráðstafa þeim fjármunum heldur var það ráðherra sem tók ákvörðun um að skera sjóðinn niður um það sem nemur kostnaðinum við framkvæmd, sem Landsnet og Rarik ber lagaleg skylda til að sinna og hefði átt að fjármagna. Lagafrumvörp og þingsályktunartillögur tengdar orkumálum hafa verið sjö talsins, til samanburðar hafa öll önnur frumvörp og þingsályktunartillögur hjá ráðuneytinu til samans verið átta. Að frátöldum tveimur frumvörpum um hátternisreglur og forgang almennings eru öll orkufrumvörpin sett fram til að stytta ferla, draga úr samráði, fækka kæruleiðum og draga þannig úr aðkomu almennings að þessum afdrifaríku ákvörðunum. Eitt frumvarpið er sérstaklega sett fram til að bregðast við niðurstöðu Héraðsdóms um Hvammsvirkjun. Frumvarpið er í raun sett fram til að ómerkja dóm. Við í Landvernd teljum um valdbeitingu að ræða svo knýja mætti áfram virkjunarframkvæmdirnar þrátt fyrir dóminn. Það er holur hljómur í orðum ráðherra um nálarauga rammaáætlunar. Fram hafa komið margar tillögur um að færa virkjanahugmyndir í nýtingarátt, annað hvort úr vernd í biðflokk eða bið- í nýtingarflokk. Nálaraugað á greinilega að víkka út með pólitísku valdi. Þar má telja upp tillögu ráðherra að færa Garpsdal úr biðflokki í nýtingarflokk en annars hafði verið lagt til að flokka allar vindorkuhugmyndir í biðflokk. Faghópur rammans telur einfaldlega ekki hægt að setja hugmyndina í nýtingu vegna óvissu um áhrif á haförninn sem við berum alþjóðlega ábyrgð á. Þá var gerð tillaga um að færa Kjalölduveitu og Hérðasvötn úr verndarflokki í biðflokk og að færa Hamarsvirkjun úr verndarflokki í biðflokk. Þá var vindorkufrumvarp sem birtist á samráðsgátt nýlega, skref í rétta átt þar sem áformað er um að fjöldi svæða verði undanskilin hagnýtingu vindorku. En eins og Landvernd, Fuglavernd og fleiri bentu á í umsögnum sínum gengur frumvarpið ekki nógu langt til þess að vera traust aðhald mót þeim rúmlega 40 verkefnum erlendra stórfyrirtækja hringinn í kring um landið. Látið er eins og það skipti sköpum í löngu ferli, hvort umsagnarfrestur almennings sé tvær eða sex vikur, í risaframkvæmdum sem taka mörg ár í undirbúningi og valda óafturkræfum náttúruspjöllum. Náttúruverndarsinnar sem af hugsjón keppast við að lesa hundruð blaðsíðna af umhverfismatsskýrslum við eldhúsborðið á kvöldin eiga að gyrða sig í brók og sýna fádæma snerpu við umsagnaskrif, en framkvæmdaaðilar sem hafa jafnvel ástundað óheiðarleg vinnubrögð, líkt og Landsvirkjun gerði í sumar þegar hún þóttist vera að sækja möl þegar augljóslega var verið að grafa skurð fyrir Hvammsvirkjun, standa hróðugir og níða jafnvel niður faglega vinnu rammaáætlunar. Slíkt skapar sundrung en ekki samstöðu. Því er gjarnan haldið hátt á lofti að það að ekki hafi tekist að samþykkja þriðja áfanga rammaáætlunar á þingi í mörg ár, sé merki þess að ekkert hafi gerst í orkumálum í fjölda ára. Vandræðagangur á þingi er á einhvern undarlegan hátt notaður sem átylla til þess að stytta og einfalda umsóknir og samráð á leyfisveitingaferlinu. Á meðan rammaáætlun var föst í þinginu jókst raforkuframleiðsla Íslendinga samt um 2,2 TWst á síðustu 10 árum. Það er ekki kyrrstaða í mínum bókum. Það er mjög mikilvægt að forgangsraða náttúrunni ofar. Pólitískt hringl með niðurstöðu faghópa í rammaáætlun er jafn alvarlegt og afdrifaríkt og ef stjórnvöld virtu ráðgjöf Hafró að vettugi og ákveddu að veiða miklu meiri fisk, vegna þess að „eftirspurn eftir fiski sé svo mikil“. Það að vera með plan hlýtur að þýða að horft sé til framtíðar. Það á að vera langtímaplan en ekki skammtímaplan. Það má ekki ganga fram með offorsi, það er skammgóður vermir. Þegar kemur að því að ráðstafa verðmætum auðlindum er mikilvægt að flýta sér hægt, meta þarf í hverju hin raunverulegu verðmæti felast. Brussugangur, án faglegra vinnubragða, eðlilegt samráð við almenning og með virðingu fyrir langri framtíð, getur haft miklar neikvæðar fyrirsjáanlegar, og ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Höfundur er formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður María Þorbjarnardóttir Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar