Þegar biðlistinn víkur fyrir tímabundnum lausnum Eva Þorsteinsdóttir og Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifa 23. mars 2026 07:02 Hver á að ganga fyrir, þau sem fara eða þau sem bíða? Umræða um leikskólapláss fyrir börn hælisleitenda hefur að miklu leyti verið sett fram sem siðferðislegt próf á samúð. Það er skiljanlegt, en það er ekki nægjanlegt. Þegar opinber þjónusta sem nú þegar er sprungin og því nauðsynlegt að ræða forgangsröðun af raunsæi og sanngirni. Sveitarfélögum ber skylda til að tryggja grunnskólagöngu allra barna á skólaskyldualdri, óháð stöðu þeirra. Leikskólakerfið er hins vegar þjónusta sem er háð framboði, mannafla og fjármagni. Það eitt og sér breytir forsendum umræðunnar. Í dag er staðan sú að leikskólapláss eru ekki næg fyrir þau börn sem þegar eru í kerfinu. Biðlistar eru raunverulegir og snerta fjölskyldur sem hafa fasta búsetu og langtímatengsl við samfélagið. Þegar slíkur skortur er til staðar þá er ekki spurning hvort eigi að forgangsraða , heldur hvernig? Nú þegar er raunin sú að börn sem hafa fengið stöðu flóttamanns eru gjarnan sett í forgang í leikskólum, einmitt á grundvelli þess að þau teljast í viðkvæmri félagslegri stöðu. Þótt það sé ekki formleg sérregla í kerfinu, hefur það í framkvæmd sömu áhrif: þau færast framar, og önnur börn færast aftar. Ég tel eðlilegt og rétt að börn á grunnskólaaldri fari í skóla. Það er lögbundið, og þar er samfélagið að uppfylla lögbundna skyldu. En að jafna leikskóla við grunnskóla er rangt. Þegar leikskólaplássum er úthlutað umfram getu kerfisins, þá er hætta á að brotið sé á réttindum þeirra barna sem hafa beðið lengi og eiga raunhæfa framtíð í samfélaginu. Þetta snýst ekki um að útiloka börn hælisleitenda frá allri þjónustu. Það er bæði óraunhæft og ósanngjarnt. En þjónustan þarf að vera í samræmi við aðstæður kerfisins. En ekki með þeim hætti að úthluta takmörkuðum leikskólaplássum þegar aðrir sitja eftir og bíða. Ef við ætlum að byggja upp sanngjarnt kerfi verðum við að þora að segja það sem er óþægilegt: Þegar pláss eru ekki til fyrir alla, þá þýðir að einhver annar fær minna. Að horfa framhjá því er ekki samúð, það er meðvirkni. Raunveruleg ábyrgð felst í því að vega og meta hagsmuni allra barna, ekki aðeins þeirra sem eru sýnilegust í umræðunni hverju sinni. Höfundar eru í framboði á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Skóla- og menntamál Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar