Úr fernu yfir í einn bikar: „Hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal“ Aron Guðmundsson skrifar 24. mars 2026 17:33 Mikel Arteta, þungur á brún eftir tap Arsenal gegn Manchester City í úrslitaleik enska deildarbikarsins á dögunum. Vísir/Getty Sparkspekingurinn Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal, segir að sitt gamla lið muni aðeins vinna einn bikar á tímabilinu, ensku úrvalsdeildina, eftir að Manchester City valtaði yfir Arsenal á dögunum í úrslitaleik enska deildarbikarsins.
Merson ritar pistil sem birtist á vefsíðu Sky Sports fyrr í dag þar sem að hann segir sigur Manchester City í úrslitaleik liðanna um síðastliðna helgi, sem lauk með 2-0 sigri Manchester City, soga sjálfstraustið úr leikmönnum Arsenal. „Leikmenn Manchester City völtuðu yfir þá. Gjörsamlega völtuðu yfir þá,“ skrifar Merson og segir Arsenal liðið of gott fyrir önnur lið en Manchester City sem það á eftir að mæta til loka tímabilsins. Arsenal er með níu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og Merson telur að sitt gamla lið muni standa uppi sem Englandsmeistari. Arsenal er hins vegar enn með í átta liða úrslitum enska bikarsins sem og átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en Merson hefur ekki trú á því að Skytturnar hans Mikel Arteta vinni þær keppnir. „Manchester City er enn með í enska bikarnum og hafandi séð leik liðanna á dögunum sé ég ekki Arsenal fyrir mér mæta aftur á Wembley og vinna Manchester City. Í Meistaradeild Evrópu horfi ég síðan á Barcelona, sem Arsenal mun að öllum líkindum mæta í undanúrslitum, og sé leikmenn ekki búa yfir þeim hraða sem þarf til þess að valda háu línu Börsunga vandræðum.“ Og bendir Merson þá á það hvernig Anthony Gordon og Anthony Elanga náðu að valda Börsungum vandræðum í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Arsenal mætir Sporting Lisabon í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar á meðan að Barcelona mætir Atletico Madrid. Sigurliðin úr þessum tveimur einvígjum mætast í undanúrslitum keppninnar. „Ég hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal.“
Arsenal FC Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira