Minna flækjustig og fleiri tækifæri í grænum útlánum Aðalheiður Snæbjarnardóttir skrifar 25. mars 2026 10:46 Það er deilt um ýmislegt sem snýr að sjálfbærni en eitt er þó óumdeilt: Auðlindir jarðar eru takmarkaðar og auðlindanotkun getur ekki farið út fyrir þau endanlegu mörk sem náttúran setur án þess að skaða almannahagsmuni til framtíðar. Markmiðið með því að vinna að sjálfbærri þróun er að gæta þess að mannkynið haldi sig innan þessara marka, að hægt sé að mæta þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum. Fjármálafyrirtæki geta fyrst og fremst haft áhrif í þessa veru með því að beina fjármagni til verkefna sem sannarlega stuðla að sjálfbærri þróun. Slík verkefni eru fjölbreytt, t.d. notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum, bætt orkunýting í iðnaði, gagnaverum og upplýsingatækni, veiðar úr vottuðum fiskstofnum, vottaðar byggingar, vottuð skógrækt og miklu fleira. Umhverfisvottanir stuðla að betri nýtingu auðlinda og hraðar för okkar að hringrásarhagkerfinu sem er ávinningur fyrir okkur öll. Græn skuldabréf til að fjármagna græn útlán Til að halda utan um hvaða verkefni uppfylla þessi skilyrði gefa fjármálafyrirtæki út sjálfbærar fjármálaumgjarðir sem eru notaðar sem grundvöllur að útgáfu grænna skuldabréfa. Peningana, sem aflað er með útgáfu skuldabréfanna, er síðan hægt að nota til að fjármagna verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun. Fyrstu grænu skuldabréfin voru gefin út af Evrópska fjárfestingarbankanum (EIB) árið 2007 og síðan hafa græn skuldabréf verið eftirsótt af fjárfestum. Landsbankinn birti sína fyrstu sjálfbæru fjármálaumgjörð árið 2021 og hefur síðan reglulega gefið út græn skuldabréf. Hlutfall grænna útlána fer vaxandi Til þess að geta staðið undir reglulegum grænum skuldabréfaútgáfum þurfa útgefendur bréfanna að sýna fram á að þeir geti ráðstafað peningunum áfram í sjálfbær verkefni. Í tilfelli viðskiptabanka líkt og Landsbankans er það fyrst og fremst gert með því að lána peninga til verkefna sem uppfylla kröfur um sjálfbærni. Þegar uppgjör íslensku viðskiptabankanna þriggja fyrir árið 2025 eru skoðuð má sjá að sjálfbær útlán bankanna skiptast á milli fyrirtækjalána (53%) og íbúðalána (47%). Heildarfjármagn sjálfbærra útlána var um 625 milljarðar króna. Aukning á milli ára nam 63 milljörðum króna og var vöxturinn meiri en í öðrum útlánum. Heildarútlán bankanna voru í árslok 2025 samtals tæpir 4.580 milljarðar króna og eru sjálfbær útlán því um 14% af heildarútlánum. Í tilfelli Landsbankans er vöxturinn bæði vegna útlána til nýrra verkefna en líka vegna betri greininga á lánasafninu sem hafa leitt í ljós að stærri hluti útlánasafnins uppfyllir skilyrði um sjálfbær útlán en áður var talið. Sjálfbærni getur bætt reksturinn Árið 2025 setti Landsbankinn sér markmið um að auka útlán sem falla undir sjálfbæru fjármálaumgjörðina um 10%. Það markmið náðist og hefur bankinn aftur sett sér markmið um að auka hlutfallið á þessu ári um 10%, eða 28 milljarða króna. Fleiri íslenskir bankar hafa sett sér markmið um að auka hlutfall sjálfbærra útlána í sínu lánasafni og það er gott að sjá þá stefna í sömu átt, enda er mikilvægt fyrir velsæld samfélagsins að beina fjármagni í sjálfbær verkefni. En er framboð af hæfum verkefnum nægt til að allir viðskiptabankarnir geti náð markmiðum sínum um aukningu sjálfbærra útlána? Til þess að auka framboð hæfra verkefna er hægt að hvetja fyrirtæki til að fara í aðgerðir sem beina rekstri þeirra í sjálfbærari farveg. En hvað þýðir það? Í stuttu máli eru tækifæri fyrir mörg fyrirtæki til að fara í umbreytingarverkefni til að auka sjálfbærni í rekstri. Slíkar breytingar þurfa jafnframt að þjóna starfsemi fyrirtækjanna sjálfra. Mörg dæmi eru um að aðgerðir til að auka sjálfbærni skila sér í betri rekstri, enda snýst sjálfbærni um að nýta orku og auðlindir sem best. Nærtækustu dæmin eru um verkefni sem tengjast orkuskiptum, t.d. að nota bíla og tæki sem ganga fyrir rafmagni, frekar en bensíni eða díselolíu. Þetta geta verið bílar en líka önnur tæki og vélar. Bændur gætu íhugað hvort svigrúm sé til endurheimtu á votlendi og sjávarútvegsfyrirtæki hvort hægt sé að fá vottun á afurðir þeirra. Tækifærin eru mismunandi innan atvinnugreina og á milli ólíkra fyrirtækja. Sjálfbærniteymi Landsbankans er ávallt tilbúið að aðstoða viðskiptavini og hjálpa þeim að greina tækifæri til að gera betur í rekstrinum út frá forsendum sjálfbærni. Fyrirtækin vita hvar þau geta haft áhrif Sjálfbærni þarf ekki að vera flókin en því miður varð regluverkið í kringum sjálfbærni of þungt og voru margir aðilar hættir að sjá ávinninginn af allri skýrslugjöfinni og skyldunum. Núna stefnir í einföldun á þessu regluverki með samþykki Evrópusambandsins á svokallaðri „omnibus“ eða safntillögu. Helstu áhrif þessara einföldunar hérlendis er að mun færri fyrirtæki munu falla undir upplýsingaskyldu um sjálfbærni. Það sjálfbærniregluverk sem áfram mun eiga við verður einfaldað verulega. Nú gefst fyrirtækjum því tækifæri til að nýta þá sjálfbærniþekkingu og greiningu á sinni starfsemi sem þau hafa farið í undanfarin ár til þess að vinna að verkefnum sem skila raunverulegum árangri. Það þarf ekki að fara í flókna skýrslugerð til að hafa jákvæð áhrif í gegnum kjarnastarfsemi sinnar atvinnugreinar. Fyrirtækin vita nú þegar hvar áhrif þeirra liggja. Nú er tækifæri til að láta verkin tala og ná alvöru árangri í sjálfbærni. Höfundur er forstöðumaður sjálfbærni hjá Landsbankanum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfbærni Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Sjá meira