Calafiori hjá Arsenal: Gattuso hringir meira í mig en mamma mín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2026 17:31 Gennaro Gattuso, þjálfari ítalska landsliðsins, ræðir aðeins málin við Riccardo Calafiori í leik Ítala í undankeppni HM 2026. Getty/Jonathan Moscrop Riccardo Calafiori varnarmaður Arsenal sagði að ítalski landsliðsþjálfarinn Gennaro Gattuso hefði hringt í hann oftar en móðir hans undanfarna fjóra mánuði.
Það sýnir hversu mikla athygli Gattuso veitti leikmönnum sínum á milli síðasta leiks ítalska landsliðsins í nóvember og umspilsleiksins fyrir heimsmeistaramótið gegn Norður-Írlandi í kvöld. Þar eru fjórfaldir heimsmeistarar að reyna að forðast það að missa af þriðja heimsmeistaramótinu í röð. Gattuso ferðaðist út um alla Ítalíu og fór nokkrar ferðir til útlanda til að borða kvöldverð með leikmönnum sínum og viðhalda liðsandanum. „Síðustu mánuði heyrði ég meira í honum en móður minni,“ sagði Calafiori við fjölmiðla á þriðjudag í Coverciano, æfingasvæði Ítalíu í Flórens. Hringdi stöðugt í mig „Þegar ég var frá eða spilaði ekki eins mikið hringdi hann stöðugt í mig,“ sagði Calafiori um mánuðinn frá lokum desember til loka janúar þegar hann var frá vegna vöðvameiðsla. „Og kvöldverðurinn með honum var frábær. Hann gaf okkur tækifæri til að vera saman. Þetta var eins og kvöldverður með vinum.“ Auk Gattuso voru Gianluigi Buffon, yfirmaður ítalska landsliðsins, og Leonardo Bonucci, aðstoðarþjálfari, allir fyrrverandi framúrskarandi leikmenn Ítalíu, einnig viðstaddir máltíðina í London. Deildu mörgum fótboltasögum „Það var deilt mörgum fótboltasögum, því þeir þrír eiga nóg af þeim,“ sagði Calafiori. Calafiori, sem er orðinn fastamaður í ítalska landsliðinu, er enn að ná sér eftir mánaðar fjarveru, en hann hóf tímabilið sem fastamaður í byrjunarliði Arsenal. Hann er þó ekki öruggur með byrjunarliðssæti hjá Arsenal þessa dagana, þar sem Piero Hincapié hefur staðið sig vel í fjarveru Calafioris og heldur sæti sínu nú þegar Ítalinn er kominn aftur. Þrátt fyrir að Arsenal hafi tapað fyrir Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins á sunnudag á Calafiori enn möguleika á að vinna ensku úrvalsdeildina þar sem Arsenal er með níu stiga forystu á City. En Calafiori hefur önnur markmið líka. Draumur sem ég átti sem barn „Að komast á heimsmeistaramótið er draumur sem ég átti sem barn, svo ég get ekki beðið eftir að spila þennan leik,“ sagði hann. Auk þess að sigra Norður-Írland á heimavelli í Bergamo í kvöld, þyrfti Ítalía einnig að sigra annaðhvort Wales eða Bosníu og Hersegóvínu á útivelli í næstu viku til að komast á komandi mót í Norður-Ameríku.
Arsenal FC HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira