Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Árni Sæberg skrifar 26. mars 2026 09:54 Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. vísir/egill Dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands leggur til að virðisaukaskattur á matvöru og barnavörur verði lækkaður til þess að draga úr verðbólgu. Áhrifin yrðu skörp og myndi gagnast þeim hópum sem fara verst út úr aukinni verðbólgu.
Hagstofan birti verðbólgutölur marsmánaðar í morgun og þar má sjá að verðbólga jókst úr 5,2 prósentum í 5,4 prósent milli mánaða. Verð á mat og óáfengum drykkjum hafi hækkað um 0,7 prósent og haft 0,11 prósenta áhrif á vísitöluna til hækkunar, verð á bensíni hafi hækkað um 5,8 prósent og haft 0,10 prósenta áhrif til hækkunar og verð á dísel hafi hækkað um 6,9 prósent og haft 0,05 prósenta áhrif til hækkunar. Syrtir í álinn Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði, rifjaði í gær upp orð sem hann lét falla í Sprengisandi á Bylgjunni í febrúar. „Maður veltir því fyrir sér hvort það væri hugsanlega hægt, eins og er verið að gera á hinum Norðurlöndunum, að lækka skatta á meðal annars matvæli og að mínu mati væri það augljós leið til að bæta hag heimilanna og til að ná verðbólgudraugnum eitthvað niður,“ sagði hann þá. Í færslu á Facebook segir hann að síðan þau orð féllu hafi verðbólguhorfur versnað enn frekar og ekki hafi svo bætt úr skák stríðið í Íran. Myndi hjálpa þeim sem blæðir mest Fram hafi komið að Svíar ætli tímabundið að draga úr bensínsköttum, en dræmt sé tekið í slíkar hugmyndir hérlendis. Auk þess hafi margoft verið bent á að hátt vaxtastig bitni helst á þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í barneignum og að stækka við sig húsnæði. „Einfalt ráð væri að lækka vsk á matvæli og líta svo sérstaklega til vsk prósentu barnavara. Þannig myndi verðbólga lækka, sem drægi úr áhrifum á hækkunum opinberra gjalda. Áhrifin væru skörp og gagnast mest þeim hópum sem nú blæða mest sökum hás vaxtastigs.“
Verðlag Efnahagsmál Skattar, tollar og gjöld Íslenska krónan Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira