Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Árni Sæberg skrifar 26. mars 2026 16:42 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Egill Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár.
Hagstofan tilkynnti í morgun að verðbólga mældist 5,4 prósent í mars, samanborið við 5,2 prósent í febrúar. Í síðustu viku hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti um 25 punkta í 7,5 prósent og flest bendir til þess að hann hækki vexti á ný í maí. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ritar af því tilefni pistil á Vísi undir yfirskriftinni Greið leið til lækkunar stýrivaxta. „Hærri verðbólga á Íslandi en í nágrannaríkjum og viðvarandi háir stýrivextir eru ekki náttúruöfl sem enginn ræður við heldur afleiðing okkar ákvarðana og aðgerða. Ef okkur er alvara með að ná verðbólgu niður og halda henni stöðugri til lengri tíma þurfum við að ráðast í markvissar og nokkuð augljósar aðgerðir sem myndu skila sér í mikilli kjarabót fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu,“ segir hann. Þjóðin eigi skilið að hlustað sé á Seðlabankann Á undanförnum mánuðum hafi Seðlabankinn sent skýr skilaboð og bent á þær aðgerðir sem þurfi að ráðast í. Koma þurfi böndum á ríkisútgjöld og meiri aga þurfi á vinnumarkaðsmódelið á Íslandi, af því að útgjöld geti ekki endalaust aukist umfram framleiðni. „Þjóðin á skilið að ráðamenn og aðilar vinnumarkaðarins meðtaki skilaboðin og grípi til aðgerða sem munu geta stuðlað að lækkun vaxta á næsta vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans í maí, í stað hækkunar eins og allt stefnir í að óbreyttu.“ Aðgerðirnar sem þurfi að grípa til séu eftirfarandi: Upptaka norræns vinnumarkaðsmódels þar sem svigrúm útflutningsgreinanna ákvarðar hvað sé til ráðstöfunar til launahækkana hverju sinni. Allir þurfi að fylgja þessu, líka hið opinbera. Að valdheimildir ríkissáttasemjara verði styrktar og þær færðar nær því sem gerist á Norðurlöndunum. Að stjórnvöld leggi alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld og þar með minnka umsvif ríkissjóðs. Þau fresti jafnvel atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB um ár til að sýna áherslurnar í verki. Kalli á hugrekki og samstarf Ef þessi atriði yrðu innleidd hratt með trúverðugum hætti séu líkur á að Seðlabankinn lækki vexti strax á næsta vaxtaákvörðunardegi. Það væri bein kjarabót fyrir stóran hluta þjóðarinnar enda skili hvert prósentustig tugum þúsunda króna lægri afborgun af húsnæðisláni í hverjum mánuði. „Að sjálfsögðu kallar framangreint á hugrekki stjórnmálamanna og samstarf allra á vinnumarkaðinum. Ekki eru það miklar fórnir til að komast út úr núverandi ástandi hárra vaxta á sama tíma og við aukum samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Börnin okkar eiga það skilið.“
Icelandair Verðlag Efnahagsmál Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira