Mætti vera sammála sjálfum sér Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 30. mars 2026 09:00 „Það er auðvitað augljóst að það þarf auðvitað að vera vilji til þess að stíga skrefið inn í Evrópusambandið til þess að hefja aðildarviðræður að nýju,“ sagði Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, í samtali við Dv.is 10. janúar síðastliðinn. Með öðrum orðum væri forsenda þess að hafið yrði á ný umsóknarferli að sambandinu að vilji væri fyrir því að ganga þar inn. Þá sagði hann enn fremur að augljóst væri hvað fengist með inngöngu í það. Nú segir hann til að mynda í grein á Vísi um helgina að hægt sé að hefja slíkt umsóknarferli aðeins til þess að sjá hvað sé á boðstólum. Vandamálið fyrir Magnús, fyrir utan það að vera ósammála sjálfum sér, er að Evrópusambandið sjálft er sammála því sem hann sagði í janúar. Fram kemur þannig skýrt í gögnum sambandsins að umsókn feli í sér að ætlunin sé að ganga þar inn. Til að mynda í viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands á sínum tíma þar sem meðal annars segir að sameiginlegt markmið Íslands og sambandsins sé innganga í það. Viðræðuramminn markar, eins og nafnið felur í sér, þann ramma sem viðræðurnar fara fram innan. Þá er um að ræða umboð Evrópusambandsins vegna viðræðnanna. Fyrir vikið er fullkomlega eðlilegt að talað sé um að þjóðaratkvæðið í lok ágúst sé í reynd um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Við það bætist síðan sú staðreynd að ekki er um einfaldar viðræður að ræða heldur umsóknarferli sem felur fyrst og fremst í sér aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins samhliða viðræðunum við það. Samkvæmt orðum forystumanna Evrópusambandsins sjálfs og gögnum þess. Meira að segja kemur það fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið. Með öðrum orðum þýðir það að kæmi til þess að samþykkt yrði í lok ágúst að hefja umsóknarferlið á nýjan leik stæðu kjósendur frammi fyrir því að Ísland hefði verið aðlagað að öllu regluverki Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess þegar samningur lægi fyrir og kosið yrði um hann. Landið væri þá í raun búið að uppfylla öll skilyrði inngöngu í sambandið fyrir utan það að ganga beinlínis formlega í það. Hugsunin á bak við þetta er sú að þegar kosið yrði um samning hefði þetta þau áhrif á marga kjósendur að þeir teldu rétt að segja já vegna þess að það væri í raun þegar orðinn hlutur. Fleira kom annars fram í grein Magnúsar í þessum efnum. Til dæmis sagði hann Ísland hafa tekið upp stóran hluta regluverks Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. Fyrir skömmu síðan skrifaði hann hins vegar grein á Vísi þar sem hann fullyrti að við hefðum tekið upp mikinn meirihluta regluverksins. Sem stenzt raunar enga skoðun og hefur aldrei gert. Reyndar sagði hann í lok þeirrar greinar að við hefðum tekið upp 75% regluverks innri markaðar sambandsins sem er nær lagi enda gerðumst við aðilar að honum í gegnum samninginn. Hins vegar er regluverk þess miklu viðameira en það. Magnús hefur sjálfur verið sannfærður um það áratugum saman að rétt væri fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. Hann hefur ekki þurft neinn samning til þess. Evrópuhreyfingin sem hann fer fyrir hefur enn fremur ítrekað keypt skoðanakannanir varðandi afstöðu fólks til inngöngu í sambandið. Reyndar hefur það verið þannig að ef niðurstöður slíkra kannana hafa sýnt fleiri hlynnta því að ganga í Evrópusambandið hafa forystumenn hreyfingarinnar fagnað því en ef niðurstaðan hefur verið á hinn veginn hafa þeir sagt fólk alls ekki geta tekið afstöðu til málsins nema samningur lægi fyrir. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
„
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun