Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson, Baldur Borgþórsson og Sigfús Aðalsteinsson skrifa 31. mars 2026 10:32 Þann 25. september síðastliðinn birtist eftirfarandi frétt á vef Reykjavíkurborgar: „Reykjavíkurborg hefur gert þriggja ára samning við Samtökin ’78. Í honum felst hinsegin fræðsla fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, nemendur í 3., 6. og 9. bekk grunnskóla og innan íþróttafélaga borgarinnar.“ https://reykjavik.is/frettir/2025/samningur-vid-samtokin-78-endurnyjadur-til-thriggja-ara Þessi samningur er til þriggja ára og hljóðar upp á peningagreiðslu til Samtakanna ’78 upp á kr. 45 milljónir. Þá er vert að spyrja? Er þessi svokallaða „hinsegin fræðsla“ byggði á traustum fræðilegum grunni og studd ritrýndum rannsóknum á sviði uppeldis- og menntamála? Látum Samtökin ’78 um að svara eftirfarandi spurningu. Svarið er tekið af fræðsluvef Samtakanna ’78 sem kallast „Hinsegin frá A til Ö“ og má finna á vefslóðinni: https://otila.is/ Svar Samtakanna ’78 „Þessi vefsíða er ekki ritrýnd og henni er ekki ætlað að vera fræðilegs eðlis. Hún lýtur því ekki fræðilegum kröfum þegar kemur að heimildanotkun. Þegar við á er vísað í þær heimildir sem byggt var á við gerð textans. Þegar heimilda er ekki getið er það almennt vegna þess að þekkingin liggur enn einkum hjá grasrótinni. Það þýðir að þekkingin ferðast um munnlega, á samfélagsmiðlum, verður til á fundum grasrótarfélaga og svo framvegis. Þetta á til dæmis við um skilgreiningar á hugtökum sem tengjast sjálfsmyndinni. Þessi þekking er mikilvæg og undirstaða allrar fræðilegrar þekkingar.“ 1. Spurning: Er við hæfi að reykvískum, sem og íslenskum, skólabörnum sé boðið sé upp á kennsluefni sem ekki er byggt á neinum fræðilegum grunni?Svar Okkar Borgar: Nei! 2. Spurning: Er það góð stjórnsýsla að grasrótarfélög, eins og þau kjósa að kalla sig, fái tugmilljóna styrki til að bera á borð „þekkingu sem ferðast um munnlega, á samfélagsmiðlum og verður til á fundum grasrótarfélaga“? Svar Okkar Borgar: Nei! 3. Spurning: Er þessum peningum betur varið? Svar Okkar Borgar: Já! 4. Spurning: Er þeim verðmæta og takmarkaða tíma sem börn fá í grunnskóla betur varið? Svar Okkar Borgar: Já! Stefna Okkar Borgar er skýr! Öllum samningum um hinsegin- og kynjafræðslu í leik- og grunnskólum, sem og íþróttafélögum, verður sagt upp og henni hætt. Telji foreldrar þörf á slíkri þjónustu fyrir sín börn geta þeir leitað hennar hjá þeim samtökum sem hana veita. Veljum gleði og von – Veljum Okkar Borg – Veljum X-R Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X-R. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Okkar borg Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar