Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 2. apríl 2026 07:02 Miðað við grein Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Vísi fyrr í vikunni er ljóst að þegar hún segist ætla að tryggja yfirráð okkar Íslendinga yfir fiskveiðilögsögunni, hefjist umsóknarferli að Evrópusambandinu, er hún að vísa til reglu þess um hlutfallslega stöðugar veiðar sem byggir á sögulegri veiðireynslu. Hins vegar er reglan engin trygging fyrir neinu og breytir því ekki að valdið yfir sjávarútvegsmálum okkar færi til sambandsins. Þannig segir í greininni: „Markmiðin sem sett voru fram í síðustu aðildarviðræðum voru skýr: að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er. Þessi markmið standa enn. Hvað lögsöguna varðar þá hafa reglur sambandsins (um hlutfallslegan stöðugleika) ekki breyst – öðrum þjóðum yrði ekki heimilt að veiða í íslenskri lögsögu.“ Fyrir það fyrsta á reglan um hlutfallslega stöðugar veiðar enga stoð í Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins, grunnlöggjöf þess, en í honum er kveðið á um algert vald sambandsins yfir sjávarútvegsmálum innan þess. Regluna er einungis að finna í almennri reglugerð Evrópusambandsins um sameiginlega sjávarútvegsstefnu þess sem hægt væri að breyta eða afnema með auknum meirihluta í ráðherraráði sambandsins án samþykkis okkar þó við værum þar innanborðs. Fram kemur í gögnum Evrópusambandsins um regluna að hún sé ekki hugsuð sem varanlegt fyrirkomulag heldur aðeins tímabundið þar til réttar aðstæður skapist til þess að hægt verði að afnema hana. Sömuleiðis að söguleg veiðireynsla sé úrelt viðmið og nær sé að miða við þörf einstakra fiskveiðiflota fyrir aflaheimildir en sá spænski er sá langstærsti í Evrópu. Þá segir að reglan tryggi ekki lengur að úthlutaðar aflaheimildir til einstakra ríkja sambandsins haldist þar. Með öðrum orðum ætlar Þorgerður ljóslega ekki að semja um neitt við Evrópusambandið um sjávarútvegsmálin enda er reglan um hlutfallslega stöðugar veiðar þegar til staðar. Vert er að hafa í huga í þessu sambandi að samningur sem Írar höfðu við sambandið um sjávarútvegsmál, sem tryggja átti þeim lágmarksaflahlutdeild á miðunum við Írland og var hafður að engu fyrir jólin, hafði hliðstæða lagalega stöðu og reglan. Var þannig einungis hluti af sömu reglugerð og hún. Fleira kom fram í grein Þorgerðar. Til dæmis fullyrti hún að evrópskar fiskveiðiþjóðir hefðu ekki áhuga á því að komast í miðin okkar heldur á þeirri þekkingu sem við byggjum yfir. Væntanlega er það þess vegna til dæmis sem spænsk stjórnvöld sögðust ætla að fara fram á einmitt það þegar umsóknin var síðast í gangi en til þess að Ísland gæti gengið í Evrópusambandið þyrfti samþykki allra ríkja þess. Þar á meðal Spánar. Þekkingin er aðgengileg án inngöngu í sambandið. Komið hefur fram í máli Þorgerðar að hún vilji að í umsóknarferlinu verði kaflarnir um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál verði opnaðir fyrst. Sem þó er nokkuð sem íslenzk stjórnvöld myndu ekki ráða heldur Evrópusambandið. Sjávarútvegskaflinn var aldrei opnaður síðast vegna andstöðu sambandsins við það. Hins vegar kom fram í greininni að Þorgerður gerði ráð fyrir því að köflunum yrði lokað síðast. Niðurstaða lægi sem sagt hvort eð er ekki fyrir fyrr en alveg í lokin. Þá nefndi Þorgerður lægri vexti, aðild að tollabandalagi Evrópusambandsins og aðgang að styrkjahverfi þess. Lágir stýrivextir evrusvæðisins eru hins vegar eins og þekkt er afleiðing efnahagslegar stöðnunar víðast hvar innan þess, tollabandög eru andstæða frjálsra milliríkjaviðskipta og sambandið hlutfallslega hningnandi sem markaðssvæði og við myndum greiða meira til þess en við fengjum til baka í styrki. Með öðrum orðum var allt tínt til en ekkert sem stenzt skoðun. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun