Ætla að fara fram á frávísun málsins Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 31. mars 2026 18:45 Almar Möller lögmaður segir að ákveðið hafi verið að leggja fram frávísunarkröfu við þingsetningu á máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni sem er ákærður fyrir manndráp af ásetningi. Vísir/Sara Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts 73 ára konu sem var í hans umsjá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Verjandi hans ætlar að fara fram á frávísun í málinu. Uppkomin börn konunnar sem er ákært vegna gagnrýna harðlega að Skúli Tómas hafi starfað við Landspítalann meðan mál hans var til rannsóknar.
Það var í febrúar 2021 sem fyrst voru fluttar fréttir af því að fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætti rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Málið væri á borði lögreglu. Kvörtuðu strax til Landlæknis eftir andlátið 2019 Dætur umrædds sjúklings, þær Eva og Borghildur Hauksdætur stigu fram nokkrum mánuðum síðar og upplýstu að þær hefðu tilkynnt andlát móður sinnar, Dönu Kristínar Jóhannsdóttur, til Landlæknisembættisins eftir að Dana hafi verið sett á lífslokameðferð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í stað hvíldarinnlagnar eins og fyrst hafi staðið til. Dana hafi látist vegna rangrar greiningar og meðhöndlunar haustið 2019. Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir væri grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu í málinu. Fram kom að rannsókn Landlæknis vegna málsins væri ein sú umfangsmesta í sögu embættisins. Sex andlát í rannsókn frá 2021 Málinu var svo vísað til lögreglunnar á Suðurnesjum haustið 2021 ásamt fimm öðrum andlátum, auk mála fimm annarra sjúklinga. Fram kom að tveir starfsmenn stofnunarinnar væru með réttarstöðu sakbornings í málinu. Annar þeirra var Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir. Ákært vegna upphaflega málsins Tæplega fimm ára rannsókn er nú lokið og í gær kom í ljós að Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir hefur verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögreglan felldi rannsókn hinna málanna niður. Ákært er fyrir manndráp af ásetningi og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot á sömu lögum. Gerð er krafa um að Skúli Tómas verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar auk er einkaréttarkrafa gerð. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ákært vegna andláts Dönu Kristínar Jóhannsdóttur sem lést eins og áður sagði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir lífslokameðferð haustið 2019. Ætla að fara fram á frávísun Skúli Tómas birti í dag færslu á Facebook þar sem hann sagði ákæruna áfall. Enginn refsiverður verknaður hafi átt sér stað. Almar Möller verjandi Skúla Tómasar sagði í samtali við fréttastofu í dag að nú þegar hefði verið ákveðið að fara fram á frávísun málsins þegar það verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Dagsetning þingfestingar liggi hins vegar ekki fyrir. Yfirlýsing frá börnum Dönu Kristínar Fréttastofu hefur borist yfirlýsing frá börnum Dönu Kristínar Jóhannsdóttur. Þar kemur m.a. fram að Skúli Tómas Gunnlaugsson hafi látið hafa eftir sér að sannleikurinn muni sigra að lokum. Þau voni innilega að honum verði að þeirri ósk. Meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingunni er að þau hafi sent kvörtun til Landlæknis skömmu eftir að móðir þeirra dó haustið 2019. „Málið var í rannsókn í fimmtán mánuði, lauk þann 17. febrúar 2021. Okkur þótti það langur tími en í ljósi þess að málsmeðferðartími Landlæknis er á bilinu 1-4 ár megum við víst teljast heppin. Kæra var lögð fram hjá lögreglu þann 23. febrúar 2021 og var svo rúm fimm ár í rannsókn, fyrst hjá lögreglu og svo héraðssaksóknara. Læknirinn var sviptur starfsleyfi tímabundið en var fljótt kominn aftur í vinnu á Landspítalanum og hefur starfað þar við að sinna sjúklingum meirihluta þess tíma sem málið hefur verið til rannsóknar,“ segir í yfirlýsingunni. Þau gagnrýna að Skúli Tómas hafi verið við störf á Landspítalanum meðan málin voru til rannsóknar. „Þegar ákæra var gefin út afþakkaði Landspítalinn vinnuframlag lífslokalæknisins. Það þótti aftur á móti ekkert að því að hafa manninn í starfi á opinberu sjúkrahúsi, árum saman, þótt hann væri grunaður um að hafa valdið dauða a.m.k. 6 sjúklinga. Læknamafían lýsti yfir stuðningi við Skúla og heilbrigðisráðherra kom í gegn lögum til verndar heilbrigðisstarfsfólki sem skaðar og drepur sjúklinga. Nánar tiltekið er lögreglu bannað að nota rannsóknargögn frá Landlæknisembættinu við rannsókn sakamála. Það er bagalegt í þessu máli því gögn kvörtunarmálsins hafa mikilvægt sönnunargildi sem nú fer forgörðum. Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur látið hafa eftir sér að sannleikurinn muni sigra að lokum. Við vonum innilega að honum verði að þeirri ósk,“ segir að lokum í yfirlýsingunni frá börnum Dönu Kristínar Jóhannsdóttur.
Læknamistök á HSS Landspítalinn Reykjanesbær Dómsmál Lögreglumál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Sorpa stígur fram og biðst afsökunar Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Sjá meira