Er aðildarumsókn að ESB eins og hvert annað hefðbundið dægurmálaþras? Gunnar Ármannsson skrifar 1. apríl 2026 10:33 Þegar tekist er á um hvort hefja skuli að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) kristallast ágreiningurinn oft í því hvernig menn nálgast sjálft viðfangsefnið. Er þar um að ræða stjórnskipulegt grundvallarmál sem krefst skýrs umboðs í kosningum, eða er þetta hefðbundið pólitískt úrlausnarefni sem hægt er að vísa til þjóðarinnar hvenær sem er á kjörtímabilinu? Sú afstaða hefur verið sett fram að Alþingiskosningar snúist aldrei um eitt einstakt mál og því sé rökleysa að hafna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður á þeim grundvelli að málið hafi ekki verið í brennidepli fyrir síðustu kosningar. Því er haldið fram að spurningin um ESB-viðræður sé upplagt verkfæri til beins samráðs við þjóðina og að andstaða við slíka atkvæðagreiðslu þrengi að lýðræðinu. Þessi nálgun gerir ráð fyrir því að aðildarviðræður við ESB séu áþekkar öðrum hefðbundnum viðfangsefnum stjórnmálanna sem takast megi á um á grundvelli almennrar upplýstrar umræðu. Þessi röksemdafærsla stenst þó illa þegar litið er til eðlis þess ferlis sem ESB-aðild kallar á. Ef flokkar með Evrópusambandsaðild á dagskrá ná meirihluta í Alþingiskosningum til að mynda stjórn, að lokinni kosningabaráttu þar sem aðild er til umræðu og rökræðu, er hægt að fara í þá vegferð að ná sem bestum samningi, hvort sem það kallast samningaviðræður eða aðlögunarviðræður, og leggja þá niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við þær aðstæður væri allt uppi á borðum. Allar staðreyndir málsins fyrirliggjandi og engin þörf á að „kíkja í pakka“. Yrði þessi niðurstaða samþykkt myndi þurfa að breyta stjórnarskránni, rjúfa þing og kjósa að nýju. Þetta þriggja skrefa ferli tryggir að stjórnskipuleg undirstaða ríkisins sé ekki meðhöndluð eins og hvert annað dægurmálaþras, heldur sé um að ræða skilgreint fullveldisframsal að hluta, til stofnana ESB, sem væri þá háð ströngustu lýðræðislegu kröfum. Munurinn á markaðsaðgangi og stjórnmálalegum samruna Kjarninn í málinu er sá að aðild að ESB felur í sér valdframsal, og þar með afsal á hluta fullveldis, sem er eðlisólíkt núverandi samstarfi Íslands á grundvelli EES-samningsins. EES-samningurinn er í grunninn markaðssamningur sem tekur til fjórfrelsisins, en hann nær ekki til þeirra málaflokka sem teljast til grunnstoða fullveldisins: sjávarútvegs, landbúnaðar, tollamála, ytri viðskipta og myntmála. Ísland hefur fullt forræði á þessum sviðum og hefur ekki þurft að framselja lykilvaldheimildir til stofnana Evrópusambandsins. Þetta er stutt af sjónarmiðum fyrrverandi forseta EFTA dómstólsins Carl Baudenbacher í umsögn hans um þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi 29. ágúst 2026 um hugsanlegar viðræður um aðild að Evrópusambandinu, dags. 27. mars 2026, þar sem hann leggur áherslu á að kjarni EES-samningsins sé tveggja stoða kerfið sem tryggir EFTA-ríkjunum sjálfstæða eftirlitsstofnun (ESA) og sjálfstæðan dómstól (EFTA-dómstólinn). Icesave-málið er tekið sem skýrt dæmi um hvernig þetta kerfi stóð vörð um hagsmuni Íslands gegn pólitískum þrýstingi frá framkvæmdastjórn ESB, sem hafði meðal annars reynt að knýja fram óhagstæða niðurstöðu í miðjum aðildarviðræðum. Við inngöngu í ESB myndi þessi sjálfstæða stoð hverfa og Ísland yrði undirorpið beinu valdi og lögskýringaraðferðum Evrópudómstólsins, sem samkvæmt Baudenbacher hefur sýnt ríka tilhneigingu til að útvíkka valdsvið ESB á kostnað aðildarríkjanna. Þótt afsal fullveldis við inngöngu sé afmarkað og bundið við tiltekin málefnasvið samkvæmt 3. gr. sáttmálans um Evrópusambandið (TEU) og háð nálægðarreglunni, breytir það ekki þeirri staðreynd að fullveldið er skert. Má í því samhengi vísa til orða Ragnhildar Helgadóttur, lagaprófessors og rektors HR, í þættinum Torgið hjá RUV þann 24. mars sl. Þar sagði hún m.a. að fullveldi væri matskennt og að ríki noti fullveldi sitt í samskiptum við önnur ríki. Það sé hins vegar ekki spurning um hvort fullveldi sé „on-off“, fullveldi sé skali. Hún klikkti út með þeim orðum að ekkert ríki meðal sameinuðu þjóðanna eða í heiminum öllum væru 100% fullvalda. Í sama þætti sagði Gunnar Þór Pétursson, lagaprófessor, að aðildarsamningur myndi óhjákvæmilega fela í sér að stórir þættir, svo sem myntbandalag, tollabandalag og sjávarútvegsstefna, færðust undir forræði sambandsins. Raunveruleikinn að baki „sérstöðu“ og „undanþágum“ Ein af helstu röksemdum þeirra sem vilja flýta þjóðaratkvæðagreiðslu er að mikilvægt sé að "sjá hvað er í pakkanum" og treysta á að Ísland geti samið um varanlegar undanþágur. Albert Jónsson, sérfræðingur um öryggis- og varnarmál og fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi, greinir þetta ítarlega á visir.is þann 29. mars 2026, og sýnir fram á hversu óraunhæf sú vænting er. Ísland krefst varanlegs forræðis yfir sjávarútvegi og auðlindum, en slík krafa stangast beint á við grundvallarreglur ESB um samþættingu og einsleitni. Hann segir að Lissabon-sáttmálinn hafi fært verndun fiskistofna undir forræði ESB (e.exclusive competence). Krafa Íslands um yfirráð og forræði væri því ekki venjulegt samningsatriði um málamiðlanir, heldur ófrávíkjanleg krafa um undanþágu frá lykilsáttmálum sambandsins. Evrópusambandið væri einfaldlega ekki hannað til að rúma slíka sérstöðu. Gunnar Þór Pétursson, lagaprófessor, tók undir þetta í tilvitnuðum þætti Torgsins þegar hann sagði að varanlegar undanþágur væru undantekning og yrðu ekki auðsóttar. Ekkert ríki hafi hingað til haldið fullu forræði yfir nýtingarrétti án aðlögunar að sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB. Þá bendir Albert einnig á sérstöðu Íslands í loftslagsmálum, þar sem hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku gerir það að verkum að loftslagsstefna ESB yrði Íslandi afar kostnaðarsöm, sem enn frekar kallaði á sérstakar undanþágur sem ESB hefur lítinn hag af að veita. Samantekt Sjónarmið um að þjóðaratkvæðagreiðsla á miðju kjörtímabili sé til marks um blómlegt lýðræði líta framhjá eðli ESB-aðildar. Eins og rökstutt hefur verið er innganga í ESB ekki eins og hver önnur stjórnvaldsákvörðun eða lagabreyting. Hún felur í sér varanlegt afsal á ríkisvaldi á lykilsviðum þjóðlífsins og afnám mikilvægra varnarstoða sem EES-samningurinn veitir. Að hefja slíkt ferli án þess að málið hafi hlotið afdráttarlausa lýðræðislega umræðu og umboð sem meginmál í aðdraganda Alþingiskosninga, er að gera lítið úr stjórnskipulegu vægi fullveldisins. Gagnrýni fræðimannanna, bæði hvað varðar ólíklegar horfur á varanlegum undanþágum í sjávarútvegi og hættuna á pólitískri yfirstjórn án nægilegs lýðræðislegs aðhalds, styður eindregið þá kröfu að málið sé nálgast af dýpstu alvöru en ekki gert að hefðbundnu dægurmálaþrasi stjórnmálanna. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar