Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar 3. apríl 2026 13:03 Á þessu kjörtímabili hefur núverandi meirihluti í Kópavogi markvisst lagt áherslu á ábyrgan rekstur bæjarfélagsins, hagræðingu og að skila ávinningnum í formi skattalækkana og bættrar þjónustu til heimila og fyrirtækja í bænum. Meginstefið er að fara vel með fjármuni skattgreiðenda, tryggja trausta fjárhagsstöðu og skapa þannig tækifæri til áframhaldandi sóknar fyrir íbúa Kópavogs. Rekstur Kópavogsbæjar hefur verið rekinn af festu og með aðhaldi. Fjárhagslegar lykilstærðir sýna að rekstrarniðurstaða er jákvæð, skuldahlutföll hafa lækkað og heildarskuldir lækkað að raunvirði. Þá er veltufé frá rekstri sterkt sem veitir bænum svigrúm til bæði fjárfestinga og niðurgreiðslu skulda. Þessi trausta staða er forsenda þess að unnt sé að lækka skatta án þess að ganga á grunnþjónustu eða framtíðaruppbyggingu í samfélaginu. Þetta hefur verið rauði þráðurinn í áherslum meirihlutans allt kjörtímabilið. Frá því núverandi meirihluti tók við hafa fasteignaskattar og önnur fasteignagjöld lækkað ár frá ári. Samtals nema þessar sértæku skattalækkanir um 4 milljörðum króna, sem jafngildir 260.000 krónum árlega á hvert heimili í bænum. Þessi þróun er sérstaklega athyglisverð í ljósi þess að fasteignamat hefur hækkað umtalsvert á kjörtímabilinu. Í dag greiða Kópavogsbúar lægstu fasteignagjöld á höfuðborgarsvæðinu og á meðal stærstu sveitarfélaga landsins. Með umræddri lækkun hefur bænum tekist að verja íbúa gegn því að hækkandi fasteignaverð leiði sjálfkrafa til aukinnar skattbyrði. Ábyrgur rekstur felur þó ekki einungis í sér lægri skatta heldur einnig skýra forgangsröðun í útgjöldum og þjónustu. Í fjárhagsáætlunum Kópavogsbæjar hefur verið lögð áhersla á að setja grunnþjónustu í forgang, sérstaklega þjónustu við barnafjölskyldur og eldri borgara. Fjárfest hefur verið í leik- og grunnskólum, frístundastyrkir barna og ungmenna hafa verið hækkaðir og verkefni sem stuðla að virkni og vellíðan eldri íbúa hafa verið efld. Samhliða þessu hefur aðhalds verið gætt í rekstri. Hagræðing, einföldun ferla og markviss endurskoðun á útgjöldum hafa gert það að verkum að unnt hefur verið að forðast óþarfa kostnað sem aftur gerir okkur kleift að beina fjármagni þangað sem það skilar mestum samfélagslegum ávinningi. Slík nálgun sýnir að ábyrg fjármálastjórn snýst ekki um niðurskurð í þjónustu, heldur um forgangsröðun og skynsamlega nýtingu fjármuna. Stefna Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi um ábyrgan rekstur og skattalækkanir sendir skýr skilaboð til íbúa: að vel sé farið með skattfé og það meðhöndlað af ábyrgð og virðingu. Skattar eru ekki markmið í sjálfu sér, heldur tæki til að tryggja góða þjónustu og öflugt samfélag. Þegar rekstur er traustur og forgangsröðun skýr er á sama tíma hægt að efla þjónustu, byggja upp og létta álögum af heimilum. Árangurinn talar sínu máli. Með ábyrgum rekstri, lægri sköttum og stöðugri uppbyggingu hefur Kópavogsbær styrkt stöðu sína sem eftirsóknarvert sveitarfélag þar sem góð þjónusta og hagkvæmur rekstur fara saman. Kópavogur er í sókn, höldum því áfram! Höfundur skipar 5. sæti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Sjálfstæðisflokkurinn Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar