Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar 7. apríl 2026 23:02 Jónatan Ljónshjarta var og er heilmikil hetja í mínum augum. Hans fyrsta hetjudáð af mörgum var að bjarga dauðvona bróður sínum Karli (Snúði) úr brennandi húsi þeirra. Jónatan lést af sárum sínum. Skömmu síðar dó Snúður og þá sameinuðust bræðurnir í hinum friðsæla og fallega Kirsuberjadal, rétt eins og Jónatan hafði lofað. Kyrrðin og fegurðin var þvílík að Snúður hafði aldrei vitað neitt dásamlegra. Í næsta dal, Þyrnirósadal, var ekki síður fallegt um að litast en friðsæll var dalurinn ekki. Þar drottnaði hinn illi Þengill með liðsinni fjölmenns hers og drekans Kötlu. Bræðurnir Ljónshjarta hefðu auðveldlega getað unað glaðir við sitt í sveitasælunni, en Jónatan var einn af þeim sem ekkert illt mátti vita og því ekki í boði að láta fara vel um sig meðan fólk í næsta nágrenni þjáðist. Jónatan gekk til liðs við fámenna andspyrnuhreyfingu og ákvað að halda í hættuför yfir fjöllin sem skildu dalina að til að freista þess að frelsa Örvar, foringja andspyrnuhreyfingarinnar, úr Kötluhelli. Snúði litla Ljónshjarta leist afleitlega á þessi áform bróður síns og grátbað hann að vera um kyrrt. Hann spurði Jónatan hvers vegna hann yrði að hætta sér út í svona mikla tvísýnu þegar hann gæti notið lífsins í Kirsuberjadals með sér. Þá sagði Jónatan að það væri sitthvað sem maður yrði að gera jafnvel þótt það væri erfitt og hættulegt. „Hvers vegna?“ spurði Snúður undrandi. „Annars er maður ekki manneskja heldur bara lítið skítseiði,“ sagði Jónatan.“ Þessi fleygu orð Jónatans hljóma reyndar mun betur á frummálinu: „Det finns saker man måste göra Annars er man ingen människa utan bara en liten lort“ Ég veit ekki til hvers ég er að skrifa þetta á símann minn með 57 ára gömlum, feitum puttum. Þið sem nennið að lesa alla leið hingað þekkið væntanlega þessa uppáhaldsbók mína fullt eins vel og ég - og eruð aukinheldur örugglega öndvegis manneskjur. En einhvern veginn finnst mér mennskan vera á undanhaldi og kannski ekki úr vegi að minnast á hana af og til. Svo það sé nú sagt þá gerðist Jónatan ábyggilega sekur um allskonar brot á lögum og reglum Þengils, en ég trúi því að okkur hafi flestum þótt það gott hjá honum. Eða var hann kannski bara ótíndur glæpahundur eftir allt saman? Höfundur er skólastjóri, tónlistarmaður og manneskja Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Bókmenntir Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Sjá meira