Nýjar lausnir í húsnæðismálum eru nauðsyn, ekki val Ellen Calmon skrifar 9. apríl 2026 10:01 Húsnæðismarkaðurinn er ekki lengur aðeins spurning um framboð og eftirspurn. Hann er orðinn ein helsta áskorun samfélagsins þegar kemur að jöfnum tækifærum, öryggi og lífsgæðum. Fyrir sífellt fleiri er draumurinn um eigið húsnæði fjarlægur, og raunveruleikinn felst í langvarandi óvissu á leigumarkaði þar sem stöðugleiki er undantekning fremur en regla. Þessi staða snertir ekki síst háskólamenntað fólk sem hingað til hefur að stórum hluta staðið utan þeirra úrræða sem byggð hafa verið upp til að tryggja hagkvæmt húsnæði. Nýlegar niðurstöður könnunar sem stéttarfélögin Viska og FÍN (Félag íslenskra náttúrufræðinga) sýnir að stór hluti þessa hóps er fastur á leigumarkaði og yfirgnæfandi meirihluti þarf fjárhagslega aðstoð frá aðstandendum til að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þetta er bagaleg þróun. Viska og FÍN hafa ákveðið að bregðast við með því að ráðast í stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags. Þar er horft til fyrirmynda á borð við Bjarg, þar sem markmiðið er að byggja upp sjálfbært kerfi sem býður upp á hagkvæmari leigu og aukið öryggi. Slíkar lausnir geta skipt sköpum, sérstaklega fyrir ungt fólk sem kemur seint inn á vinnumarkað eftir langt nám og ber jafnvel byrðar námslána. Í meistararitgerð minni í opinberri stjórnsýslu rannsakaði ábyrgð og hlutverk stjórnvalda í húsnæðismálum í kjölfar náttúruhamfara en áhugi á rannsóknarefninu kviknaði þegar ég fór fyrir húsnæðisteymi Grindavíkurbæjar í kjölfar rýmingar bæjarins vegna náttúruvár. Þá kynnti ég mér meðal annars húsnæðismarkaðinn, stöðu hans og uppbyggingaráform. Í störfum mínum hef ég einnig komið að stefnumótun og uppbyggingaáformum Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum þessi reynsla segir mér að við þurfum fleiri lausnir í húsnæðismálum, hvort sem um er að ræða uppbyggingu og húsnæðisfélög eða í húsnæðislánakerfinu. Því er brýnt að stéttarfélög taki virkan þátt í húsnæðismarkaðnum með það að augnamiði að móta lausnir og horfa til langtímaöryggis félagsfólks. Í því samhengi er þó nauðsynlegt að góð samvinna eigi sér stað við opinbera aðila og markaðinn. Fram undan eru miklar áskoranir í kjaramálum einkum vegna þess verðbólguástands sem við höfum mátt búa við að undanförnu og ýmsar blikur á lofti þegar horft er til haustsins. Þetta ástand hefur einnig orðið til þess að fólk þarf að verja sífellt stærri hluta ráðstöfunartekna í húsnæðiskostnað. Viska er öflugt og framsækið stéttarfélag, en ég tel að hægt sé að styrkja þjónustu þess enn frekar, gera styrktarsjóði aðgengilegri og efla samtal við félagsfólk. Ég vil leggja mitt af mörkum til að félagið verði áfram öflugur vettvangur fyrir réttindi, velferð og framtíðarsýn háskólamenntaðra. Þá vil ég styðja við og koma í framkvæmd þeirri góðu ákvörðun Visku og FÍN um að ráðast í stofnun og uppbyggingu húsnæðisfélags, því húsnæði á ekki að vera forréttindi heldur er það grundvöllur fyrir öruggt og réttlátt samfélag. Félagar í Visku geta tekið þátt í rafrænni kosningu til stjórnar sem hefst á hádegi í dag 9. apríl og stendur til hádegis 16. apríl. Höfundur er sjálfstætt starfandi verkefnastjóri í framboði til stjórnar Visku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ellen Jacqueline Calmon Stéttarfélög Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tækni með tilgang Einar Stefánsson Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar Skoðun Bretland og Norðurslóðir Bryony Mathew skrifar Skoðun Þegar óttinn verður að röksemd Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar Skoðun Hversu oft má samgöngukerfi bregðast? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Eru huldufólk enn til eða höfum við hætt að sjá það? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar Skoðun Hvernig get ég aðstoðað? Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar Sjá meira
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar
Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar
Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar
Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar
Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun