Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Lovísa Arnardóttir skrifar 9. apríl 2026 11:01 Í yfirlýsingu segir að áfengissala hafi þegar verið gefin frjáls í fríhöfninni. Myndin er úr safni og er úr verslun ÁTVR. Vísir/Vilhelm Smáríkið hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dómi um netsölu áfengis sem féll í gær. Forsvarsmaður segir dóminn rangan og ekki skýra viðvarandi óvissu sem er í áfengissölu á Íslandi.
Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, var í gær sakfelldur fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. Hann hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Greiði hann ekki innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga. Þá var hann dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, 4,9 milljónir króna. Mikilvægt að fjallað sé um málið á æðri dómsstigum Í yfirlýsingu frá Smáríkinu segir að þau telji dóminn efnislega rangan og að þau telji mikilvægt að fjallað verði um hann á æðri dómsstigum. „Dómur héraðsdóms í gær er ekki til þess fallinn að skýra viðvarandi óvissu sem ríkir í áfengislögum. Smáríkið telur að starfsemi félagsins sé í fullu samræmi við gildandi lög og í samræmi við þær reglur sem gilda um sölu áfengis innan EES-svæðisins. Þegar er starfandi fjöldi slíkra fyrirtækja og í tilviki Smáríkisins hafa tugir þúsunda Íslendinga kosið að túlka núverandi löggjöf með sambærilegum hætti. Það sama má segja um aðrar netverslanir,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir að það liggi nú fyrir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hafi óskað eftir nánari svörum frá íslenska ríkinu um fyrirkomulag áfengissölu hér á landi. „Íslenska ríkið hefur nú þegar heimilað sölu á áfengi á framleiðslustað. Einnig hefur áfengissala í Fríhöfninni, stærstu vínbúð Íslands, verið gefin frjáls og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp sem er til þess fallið að skýra betur löggjöf um sölu áfengis í gegnum netverslanir,“ segir í yfirskýringunni. Þar segir að viðskiptavini Smáríkisins megi telja í tugum þúsunda. „Einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja kjósa á hverjum degi með hvers konar hætti þeir velja og versla sínar neysluvörur, þar með talið áfengi, sem er lögleg neysluvara. Fyrir liggur að íslenskir neytendur hafa frelsi, í gegnum EES-samninginn, til að versla áfengi í gegnum netverslanir,“ segir að lokum en undir yfirlýsinguna skrifar Vilhjálmur sjálfur.
Áfengi Netverslun með áfengi Dómsmál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira