Laufey Lín sló í gegn á Coachella Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. apríl 2026 09:42 Laufey skein skært á Coachella í gær. Frazer Harrison/Getty Images for Coachella Stórstjarnan Laufey Lín tróð í gær upp á einni vinsælustu tónlistarhátíð í heimi, Coachella sem haldin er í eyðimörk við borgina Palm Desert í Coachella Valley í Kaliforníu.
Gríðarlegur fjöldi fólks sækir hátíðina á ári hverju og Laufey steig á næst stærsta svið hátíðarinnar klukkan 20:40 í gærkvöldi á eftir sveitinni Foster The People. Þá var hún í efstu línu yfir flytjendur á auglýsingu Coachella sem gefur til kynna að hún hafi verið eitt af stærstu atriðum kvöldsins. View this post on Instagram A post shared by laufey (@laufey) Á Instagram hringrás Laufeyjar má sjá að ótal margir börðu tónlistarkonuna augum í eyðimörkinni í gær og hrósunum rigndi yfir þessa miklu stjörnu. Laufey tók fjórtán af sínum vinsælustu lögum á þessum klukkutíma tónleikum og hljóp svo með teyminu sínu yfir á næsta svið að sjá suður-amerísku stjörnuna Karol G troða upp. Á sviðinu klæddist Laufey rómantískum hvítum og flæðandi síðkjól algjörlega í hennar anda og virtist okkar kona njóta sín í botn að vanda.
Íslendingar erlendis Tónlist Bandaríkin Laufey Lín Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira