Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar 13. apríl 2026 14:02 Keyrum vélarnar í gang! hrópar ungi orkuráðherrann sem tengir ekki við náttúrumildi, en áformar náttúrubrot og náttúrutap af þeirri stærðargráðu sem aldrei hefur sést á Íslandi. Sem dæmi má nefna tugi vindorkuvera í eigu erlendra risafyrirtækja sem eiga að rísa í votlendi og ósnertu heiðarlandi, áframhaldandi rányrkju og árásir á lífríki með stóriðju í sjóeldi, stjórnlausa ásókn ferðaþjónustu í einstakar náttúruperlur á hálendi og láglendi og niðurbrot eftirlits og verndarkerfa sem voru ætluð til að verja náttúru og umhverfi á færibandi möppudýranna. Og allt verður svo auðvelt og aðgengilegt á meðan umhverfisrmál hafa ekkert ráðuneyti en eru í gíslingu orku og iðnaðar þar sem hagsmunaöflin hafa hreiðrað notalega um sig. Og ráðuneyti náttúru verður að vera bundið og keflað, ekki síst til að koma í veg fyrir hálendisþjóðgarð sem hentar ekki allskonar miklu minni hagsmunum- gjörningur sem myndi þó vernda og verja stærstu víðerni Evrópu fyrir ófæddar kynslóðir. Klapplið orkuráðherrans eru fjármagnsöflin sem rymja nú af ánægju með sitt dugmikla opinbera þjónustulið. Nú er lag og það þarf að nota þennan glugga vel. Sama klapplið hefur svo líka greiðan og heimilislegan aðgang að stjórnsýslunni, svo ekki sé minnst á stærstu fjölmiðla landsins. Gljúfrafossar eða gagnafossar Náttúrunni er slátrað á altari græðgi og skortsótta, fyrir alla þá sem vilja og vantar og fyrir öll þau gagnaver sem standa í biðröð af því að hér er nánast ekkert regluverk fyrir slíka starfssemi. Opinber stefna allra flokka Alþingis er að fórna gljúfrafossum og náttúrudjásnum fyrir gagnafossa og gróðahyggju. Stórfyrirtæki í ferðaþjónustu leggja undir sig óvarið hálendið þar sem enginn hálendisþjóðgarður er til og þjóðlendurnar eru reytingur í rassvasa forsætisráðherra. Leyfisferlar eru styttir svo flýta megi fyrirgreiðslum. Þetta snýst jú um að hafa hraðann á. Mestu leiðindin eru svo að ráðherrann ungi er ef til vill samt skásti málsvari náttúruverndar á Alþingi - svo átakanleg er ásókn og áfergja í náttúruauðlindirnar. Jafnvel stjórnarandstaðan er andsnúnari náttúruvernd en stjórnarliðarnir sem þó eru svo þjónustulundaðir við hagsmunaöflin. Ágætur stjórnarþingmaður sagði nýlega að aldrei hefði þrýstingur lobbýista á þingmenn verið harðari og illskeyttari en nú. Hér ríkja bestu og brjálæðislegustu aðstæður fyrir óheftan aðgang fjármagnsafla að valdafólki og auðlindum. Gáttirnar eru galopnar og nú er svo komið að forsætisráðuneytinu þykir eðlilegra að kalla framkvæmdastjóra Bláa Lónsins að borðinu til að móta framtíð þjóðlendanna en almannasamtök í náttúruvernd. Hættuleg staða Og þá er nú komið að kjarna máls. Ofangreint ástand er alþjóðleg uppskrift að þöggun. Það er samskiptatækni sem flæðir nú yfir heiminn og yfir ólíka málaflokka. Dregið er úr lýðræðisferlum með tilheyrandi lýðræðishalla og aðkoma almennings að ákvarðanatöku er skert. Þannig staða er stórhættuleg. Þá er víst betra að þegja og vissara að halda sig til hlés. Eins gott að rugga ekki bátum og sinna bara sínu. „Gaman að þessari Grænu göngu,“ sagði góður vinur. „Stöðu minnar vegna get ég nú ekki mætt, en ég styð málsstaðinn heilshugar af því að ég er mikill útivistarmaður og var í sveit. “ Kona sagði: „Það er svo mikilvægt að þið vekið athygli á náttúrunni. Ég er líka mikið náttúrubarn. Náttúran er stóra málið, líka fyrir börnin. En skiljanlega, stöðu minnar vegna verð ég ekki með ykkur, en ég hugsa til ykkar og gott hjá ykkur! “ „Stöðu minnar vegna get ég ekki tjáð mig opinberlega um íslenska náttúru“ „ Við hjónin getum ekki látið sjá okkur á svona viðburðum, stöðu okkar vegna.“ Þessi tónn heyrist út úr einhverjum kreðsum nú í aðdraganda Grænu göngunnar og segir stóra sögu. Manneskjur sem litla stund í lífríkinu starfa í allskonar stjórnsýslum og kerfum fyrir land og þjóð, í embættismannakerfinu og jafnvel í stofnunum um náttúruvernd taka sér stöðu með þöggun – í þögn. Eiginlega finnst mér þetta hljóma dálítið eins og: „Stöðu minnar vegna get ég ekki tekið afstöðu með börnunum mínum. Ég verð að gæta hlutleysis. En endilega verið góð við þau og gætið þeirra og berjist fyrir tilveru þeirra. Þau eru mér allt. En ég segi samt pass og hugsa til ykkar. “ Notaðu röddina þína Stöðu minnar vegna, sem manneskja, jarðarbúi og náttúruvera, er mér ljúft og virkilega skylt að mæta í Grænu gönguna á Sumardaginn fyrsta. Við ætlum að safnast saman undir grænum fánum á Arnarhóli klukkan hálf tvö þann 23. apríl. Við göngum með náttúru og fyrir náttúru og við verðum fjölmörg sem mætum einmitt stöðu okkar vegna á jörðinni. Hver og einn á sína náttúru að verja. Stöðu okkar allra vegna ætti enginn að láta sig vanta í Grænu gönguna. Og einmitt stöðu sinnar vegna ættu óttaslegnir embættismenn, gagnrýnislaust fjölmiðlafólk og þjónustulundaðir fulltrúar ( kjörnir af almenningi í allar sínar stöður) að mæta í Grænu gönguna og ganga með íslenskri náttúru, í frelsinu og af því að við eigum það og megum það. Tökum börnin með og sjáumst á Arnarhóli. Gefum okkur leyfi og tökum okkur stöðu með víðernum, lífríki og grænni framtíð fyrir fjöldann og náttúruna. ,,Ef þú notar ekki röddina þína þá notar einhver annar þögnina þína.“ Höfundur er rithöfundur, leiðsögumaður og stjórnarmaður í Landvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann Skoðun Halldór 06.06.26. Halldór Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Skoðun Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Sjá meira
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun