Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Kjartan Kjartansson skrifar 13. apríl 2026 14:15 Leó páfi lét sér fátt um gagnrýni landa síns, Donalds Trump, finnast. Hann mætti til Alsír í morgun í reisu um Afríku. Vísir/EPA Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar.
Trump sakaði Leó páfa, sem er Bandaríkjamaður, um að vera veikgeðja þegar kæmi að glæpum og utanríkismálum í færslu á eigin samfélagsmiðli seint í gærkvöldi að bandarískum tíma. Sagði hann páfa ekki standa sig vel í starfi. „Ég er ekki aðdáandi Leó páfa,“ sagði Trump við fréttamenn í gær. Hann fullyrti jafnframt að hann væri eina ástæða þess að Leó hefði náði kjöri sem páfi í fyrra. Gagnrýni Trump virðist eiga rætur sínar að rekja til nýlegra ummæla páfa um að „ranghugmyndir um almætti“ drifu áfram hernað Ísraela og Bandaríkjamanna í Íran og fleiri stríðsátök í heiminum. Páfa virtist ekki þykja mikið til gagnrýni bandaríska forsetans koma þegar hann var spurður út í hana í dag. Sagði hann að ekki væri hægt að leggja boðskapinn sem hann færði fram að jöfnu við forsetans. „Ég ætla ekki í rökræðu. Það sem ég segi á sannarlega ekki að vera árás á neinn. Boðskapur guðspjallanna er mjög skýr: sælir eru friðflytjendur,“ sagði páfi og vitnaði til fjallræðunnar úr Nýja testamentinu. Hann ætlaði ekki að láta gagnrýni Bandaríkjastjórnar fæla sig frá því að tala fyrir friði og sáttum. „Ég er ekki hræddur við Trump-stjórnina eða af því að tala ákveðið um skilaboð guðspjallsins sem er það sem kirkjan gerir.“ New York Times segir að þegar páfi var spurður beint út í gagnrýni Trump á samfélagsmiðlinum Truth, sannleikanum á íslensku, hafi hann svarað: „Það er kaldhæðnislegt, nafnið á síðunni sjálfri. Segjum ekki meir.“ Herská kristni Trump, sem hótaði í síðustu viku að gereyða íranskri siðmenningu og hefur almennt virst enn óstöðugari andlega á seinna kjörtímabili sínu en því fyrra, birti gervigreindargerða mynd af sjálfum sér í líku Jesú kristi, átrúnaðargoði kristinna manna, á sama samfélagsmiðli í gær. Trump er síðar sagður hafa eytt færslunni eftir bakslag. Gervigreindarmynd sem Trump birti af sér í líki Jesú krists að líkna veikum manni á samfélagsmiðli í gær.Skjáskot Forsetinn hefur notið mikillar hylli kristinna Bandaríkjamanna. Rúmur helmingur kaþólikka kaus hann í síðustu forsetakosningum og þá nýtur hann dyggs stuðnings evangelískra safnaða sem eru áhrifamiklir í Repúblikanaflokknum. Bæði Trump og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra hans, hafa talað um stríðsrekstur þeirra gegn Íran á trúarlegum nótum. Hegseth bað landa sínum um að biðja til Jesú krists um „yfirþyrmandi ofbeldi“ gegn óvinum Bandaríkjanna. „Ég held það, vegna þess að guð er góður, vegna þess að guð er góður og guð vill að það sé séð um fólk,“ sagði Trump nýlega þegar hann var spurður að því hvort að stríðið nyti blessunar guðs. Trump hefur á undanförnum misserum lýst yfir efasemdum um að hann komist til himnaríkis kristinna manna þegar hann fer yfir móðuna miklu.
Páfagarður Trúmál Donald Trump Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Leó fjórtándi páfi Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira