Viðskipti innlent

Ríf­lega 7.500 sóttu um 200 sumar­störf

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bláa lónið er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar starfa um 850 manns.
Bláa lónið er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar starfa um 850 manns. Vísir/Vilhelm

Gífurlegur áhugi er á sumarstörfum hjá Bláa lóninu hf. í ár. Í tilkynningu kemur fram að ríflega 7.500 umsóknir bárust um 200 störf sem ráðið verður í fyrir komandi sumar hjá félaginu. 

Í tilkynningu segir að þetta sé mesti fjöldi umsókna sem fyrirtækið hefur fengið til þessa og ríflega þreföldun frá því sem áður hefur verið.

„Það er afar ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga á störfum hjá okkur. Við leggjum ríka áherslu á að skapa aðstæður þar sem fólk fær tækifæri til að blómstra í starfi og þróa hæfileika sína,“ segir Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa lóninu, í tilkynningu. 

Hjá Bláa lóninu hf. og dótturfélögum þess starfa samkvæmt tilkynningu um 850 starfsmenn bæði hérlendis og erlendis.

„Innan Bláa lónsins eru fjölbreytt störf í þjónustu, upplifun, framleiðslu, hönnun, vísindarannsóknum, tækni og stjórnun. Starfsfólk Bláa lónsins er með ólíkan bakgrunn, menntun, færni og reynslu. Lögð er áhersla á sterka liðsheild þar sem starfsfólk fær þjálfun, ábyrgð og tækifæri til að þróast í starfi. Mikill áhugi á störfum endurspeglar mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar fyrir ungt fólk og þau fjölbreyttu tækifæri sem þar bjóðast,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Velta heilsulinda jókst töluvert

Hagstofa Íslands mældi markverða lækkun á veltu í ferðaþjónustu í lok árs 2025, að undanskildum heilsulindum þar sem veltan hafi aukist töluvert. Tólf baðlón eru starfandi á landinu.

Gætu ráðist í skráningu Bláa lónsins á markað um vorið á næsta ári

Stjórnendur og aðaleigendur Bláa lónsins horfa til þess að næsti mögulegi gluggi til að ráðast í frumútboð og skráningu í Kauphöll sé á vormánuðum ársins 2026 en ferðaþjónustufyrirtækið, sem er að líkindum verðmetið á yfir hundrað milljarða, sér fram á að slá fyrri met þegar kemur að tekjum á þessu ári.

Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina

Íbúi í Hornafirði er uggandi yfir fyrirhuguðum áætlunum Bláa lónsins um að byggja nýtt baðlón við rætur Hoffellsjökuls á Suðausturlandi. Svæðið sé einstakt á heimsvísu, allt tal um uppbyggingu sé blekkjandi þar sem einstök og óröskuð náttúran á svæðinu sé einmitt það sem laði ferðamenn að.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×