Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. apríl 2026 16:21 Val Kilmer leikur prestinn Fintan og fer með nokkuð stórt hlutverk í As Deep as the Grave. Val Kilmer hefur verið endurlífgaður með hjálp gervigreindar fyrir kvikmyndina As Deep as the Grave. Kilmer réði sig í hlutverk prestsins Fintan í myndinni en gat ekki klárað verkið vegna veikinda og lést svo í apríl 2025 úr hálskrabbameini. Í samráði við dóttur leikarans og dánarbú hans notuðu framleiðendurnir gervigreind til að endurskapa hann.
Kvikmyndin As Deep as the Grave er ævisöguleg ævintýramynd um fyrsta kvenkyns fornleifafræðing Bandaríkjanna, Ann Axtell Morris, sem vann með Navajo-indjánum á þriðja áratug síðustu aldar að því að grafa upp fyrstu siðmenningu Norður-Ameríku, Anasazi-menninguna. Leikstjóri myndarinnar er Coerte Voorhees og fara Abigail Lawrie, Tom Felton as Earl H. Morris og Abigail Breslin með aðalhlutverk í myndinni. Fyrsta stiklan fyrir myndina kom út í fyrradag og vakti strax töluverð viðbrögð, þá helst vegna þess að þar birtist tölvugerður og ungur Val Kilmer á skjánum. Kilmer birtist reglulega í stiklunni í ýmsum formum, einu sinni sem eins konar draugur og annars staðar sem ungur maður. „Óttastu ekki hina dauðu og óttastu ekki mig,“ segir persóna hans á einum tímapunkti við unga stúlku í stiklunni og horfir djúpt í augu hennar. Myndin sniðin að Kilmer Leikstjórinn Coerte Voorhees, sem skrifar einnig handritið, og framleiðandinn John Voorhees, sem er bróðir Coertes, telja sig hafa fundið siðferðislega rétta leið til að nota tæknina umdeilda sökum þess að þeir hafi unnið myndina í samráði við fjölskyldu hans. Umfjöllunarefni myndarinnar hafi sömuleiðis höfðað sterklega til leikarans. „Myndin var að miklu leyti sniðin að honum,“ sagði Voorhees við Variety í síðasta mánuði. Hún tengdist bæði tengslum Vals við frumbyggja Norður-Ameríku og ást hans á Suðvesturhluta Bandaríkjanna. „Fjölskylda hans ítrekaði hve mikilvæg myndin væri og hvað Val langaði mikið að vera hluti af henni,“ sagði hann jafnframt en á ráðstefnunni CinemaCon sagði hann að persóna leikarans væri í rúmlega klukkutíma á skjánum í myndinni. Persóna Vals talar við unga stúlku í myndina um hina dauðu. Gervigreind hefur verið mikið á milli tanna fólks síðustu mánuði, ekki síst í Hollywood, og óttast margir að hún verði notuð til að draga úr kostnaði stúdíóanna með því að fækka fagaðilum sem koma að gerð kvikmynda. Framleiðslan hafi fylgt reglum og viðmiðum stéttarfélagsins SAG og fjölskylda leikarans gefið myndefni af leikaranum til að skapa persónuna. Mercedes Kilmer, dóttir leikarans, sagði í tilkynningu að faðir hennar hefði viljað vera hluti af As Deep as the Grave. „Hann horfði alltaf á nýja tækni með jákvæðni sem tæki til að auka möguleika sagnamennsku. Þetta hugarfar er það sem við erum öll að heiðra með þessari mynd sem hann var mikilvægur hluti af,“ sagði hún í tilkynningunni. Viðbrögð fólks við stiklunni hafa skiljanlega verið misjöfn og telja margir að með þessu sé verið að setja ískyggilegt fordæmi í bransanum.
Bíó og sjónvarp Gervigreind Bandaríkin Tengdar fréttir Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Val Kilmer var heittrúaður method-leikari sem sökkti sér ofan í hlutverk sín en fékk líka orð á sig fyrir að vera dyntótt dramdrottning og erfiður í samskiptum. Í tilefni andláts Vals Kilmer hefur Vísir tekið saman tíu bestu og tíu verstu myndir leikarans. 9. apríl 2025 08:30 Rauf þögnina og minntist Kilmer með stundarþögn Tom Cruise rauf loks þögnina eftir andlát Vals Kilmer og minntist Ísmannsins með stundarþögn á kvikmyndaráðstefnu í Las Vegas í gær. 4. apríl 2025 10:18 Val Kilmer er látinn Bandaríski leikarinn Val Kilmer, ein skærasta stjarna níunda og tíunda áratugar Hollywod, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést úr lungnabólgu eftir áralanga baráttu við krabbamein í hálsi. 2. apríl 2025 06:27 Mest lesið „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Lífið Tapaði ellefu milljónum Lífið Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Bíó og sjónvarp Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Bíó og sjónvarp Með eina þriggja mánaða í vinnunni Lífið Hvað veistu um… pasta? Lífið Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Lífið Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Tíska og hönnun Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Lífið samstarf Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Lífið Fleiri fréttir Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira
Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Val Kilmer var heittrúaður method-leikari sem sökkti sér ofan í hlutverk sín en fékk líka orð á sig fyrir að vera dyntótt dramdrottning og erfiður í samskiptum. Í tilefni andláts Vals Kilmer hefur Vísir tekið saman tíu bestu og tíu verstu myndir leikarans. 9. apríl 2025 08:30
Rauf þögnina og minntist Kilmer með stundarþögn Tom Cruise rauf loks þögnina eftir andlát Vals Kilmer og minntist Ísmannsins með stundarþögn á kvikmyndaráðstefnu í Las Vegas í gær. 4. apríl 2025 10:18
Val Kilmer er látinn Bandaríski leikarinn Val Kilmer, ein skærasta stjarna níunda og tíunda áratugar Hollywod, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést úr lungnabólgu eftir áralanga baráttu við krabbamein í hálsi. 2. apríl 2025 06:27