Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar 18. apríl 2026 15:00 Kennarar eru ekki á móti því að gefa einkunnir á bilinu 0–10. Sú hugmynd er einfaldlega röng. Námsmat snýst ekki um hvort við notum bókstafi eða tölustafi – það er aukaatriði. Kjarni málsins er hvað einkunnir þýða og hvernig þær eru notaðar. Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er hæfni nemenda metin út frá fjölbreyttum þáttum. Þar er ekki aðeins horft til prófúrslita heldur líka til sjálfstæðis, samstarfshæfni og getu til að vinna undir leiðsögn. Þetta er faglegt heildarmat sem byggir á sífelldri eftirfylgni yfir allt skólaárið – ekki einfaldri prósentureiknivél. Þegar bókstafir eru notaðir er merking þeirra samkvæmt námskrá í raun skýr: A fyrir framúrskarandi hæfni, B fyrir að hafa náð viðmiðum að öllu leyti, C fyrir að hafa náð viðmiðum að einhverju leyti og D fyrir að hafa ekki náð viðmiðum. Ef á að skipta yfir í tölustafi þarf að svara grundvallarspurningum: Hvað þýðir 8? Hvað þýðir 7? Og hver er raunverulegur munur á hæfni nemenda sem fá þessar einkunnir? Í umræðunni virðist stundum ríkja sá misskilningur að námsmat sé fyrst og fremst próf. Að nemandi sem svarar 70% rétt fái einfaldlega 7. Raunin er önnur. Stór hluti þess sem skiptir máli í námi verður ekki mældur með prófi – svo sem frumkvæði, dýpt skilnings og skapandi hugsun. Þetta eru einmitt þeir þættir sem skólinn á að rækta. Ef breyta á einkunnagjöf í grunnskólanum þarf að breyta aðalnámskrá og hún verður að innihalda skýr viðmið um það hvað tölurnar þýða fyrir stöðu nemandans og taka tillit til þessara þátta. Breyting á námsmati er ekki einföld tæknileg breyting. Það er breyting á aðalnámskrá og slíkar breytingar krefjast vandaðrar vinnu, samráðs og tíma. Börn eiga skilið að breytingar séu undirbúnar af fagmennsku. Við getum ekki breytt námsmati vegna þess að hugmynd er vinsæl í umræðunni. Við getum ekki breytt án útfærslu, án samræmingar og án þess að horfa til áhrifa á allt kerfið. Kennarasamband Íslands hefur ítrekað kallað eftir raunverulegu samtali um framtíð menntamála. Við höfum kallað eftir samtali um ólíka þætti í skólastarfi í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum og þróun skólakerfisins í heild. Í víðu samráði þar sem við förum á dýptina og byggjum á metnaði og fagmennsku. Kennarar eru ekki aðeins í kjarabaráttu. Þeir eru fagfólk sem ber ábyrgð á einni mikilvægustu grunnstoð samfélagsins. Þeir eru tilbúnir í samtalið og alvöru samráð og munu mæta til leiks þegar það verður boðað. Höfundur er formaður Kennarasambands Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þór Jónsson Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar